3. mars 2026
Endur­byggja sjóvörn til að verja Hring­veg á Kjalar­nesi

Unnið er að endurbyggingu sjóvarnar í Hofsvík á Kjalarnesi. Af þeim sökum þarf að þrengja að hægri akrein Hringvegar í suðurátt. Verklok eru áætluð í júní á þessu ári.

Grjóti hefur rignt yfir þjóðveginn í verstu veðrum og skapað hættu fyrir vegfarendur.

Grjóti hefur rignt yfir þjóðveginn í verstu veðrum og skapað hættu fyrir vegfarendur.

Ástand núverandi sjóvarnar er orðið slæmt, víða eru komin skörð í hana auk þess sem hún hefur sigið töluvert. Síðustu ár hafa komið upp fjölmörg tilvik þar sem sjór, grjót og þari hefur skolast yfir sjóvörnina, upp á þjóðveg og skapað hættu fyrir vegfarendur. Nýja vörnin verður bæði hærri og sterkbyggðari en sú sem er fyrir og getur betur staðið af sér álag frá sjó og veðri.

Verkið heitir „Kjalarnes, sjóvörn 2026“ og var boðið út í desember. Fjögur tilboð bárust en samið var við lægstbjóðanda, Suðurverk hf. sem bauð um 89 m.kr. í verkið. Framkvæmdin snýst um endurbyggingu sjóvarnarinnar á 570 m kafla meðfram Hringvegi (1) við Hofsvík. Grafa þarf fyrir undirstöðum sjóvarnar, taka upp og endurraða um 3.000 rúmmetrum af grjóti úr eldri sjóvörn og svo bætast við 10.500 rúmmetrar af grjóti sem unnið verður í námu og flutt á staðinn. Grjótið er í mismunandi stærðum, frá 0,5 tonnum upp í 3 til 6 tonna steina. Þessu misstóra grjóti er síðan raðað eftir ákveðnu kerfi í garða en stærstu steinarnir mynda brynju garðsins. Uppbygging sjóvarnarinnar krefst bæði nákvæmni og færni þar sem samþjöppun og rétt uppröðun steina er lykilatriði til að verja garðinn gegn niðurbroti.

Aðaltilgangur með uppbyggingu sjóvarnarinnar er í fyrsta lagi að verja þjóðveg 1, í öðru lagi að koma í veg fyrir landrof sem annars gæti grafið undan veginum og í þriðja lagi að tryggja öryggi vegfarenda og samfellda umferð.

Meðan á framkvæmdum stendur þarf að þrengja að umferð á hægri akrein Hringvegar á Kjalarnesi í suðurátt á um 600 metra kafla. Vegfarendur eru beðnir að virða hraðatakmarkanir og aka varlega.

Áætluð verklok eru í júní á þessu ári.

Suðurverk er að undirbúa framkvæmdina þessa daga.

Suðurverk er að undirbúa framkvæmdina þessa daga.