30. maí 2025
Endur­bygg­ing stál­þils í Reyk­hóla­hreppi

Endurbygging stálþils í Reykhólahreppi

Endurbygging gömlu Karlseyjarbryggjunnar í Reykhólahreppi reyndist mun flóknara verkefni en upphaflega var áætlað vegna hruns gömlu bryggjunnar á framkvæmdatíma. Gamla stálþilið lagðist ofan í þilskurð og olli ófyrirséðum töfum. Verkið bar heitið: Reykhólahreppur – Karlsey, endurbygging stálþils 2022. Verkkaupi var hafnarstjórn Reykhólahrepps en Vegagerðin hafði umsjón með framkvæmdinni.

Endurbygging gömlu Karlseyjarbryggjunnar í Reykhólahreppi hófst formlega 13. september 2022 með undirritun samnings milli verkkaupa, sem var Reykhólahreppur, og verktakans Borgarverks ehf.

Karlseyjarbryggjan var gömlu stálþilsbryggja sem byggð var árið 1976. Ástand hennar var orðið afar slæmt, stálþilið tært með fjölmögum tæringargötum og holrýmum undir þekju. Bryggjan þjónaði aðallega Þörungaverksmiðjunni sem landaði þar þangi auk þess sem þörungaskipið Grettir hafði þar viðlegu. Bryggjan var einnig notuð fyrir löndun á fiski og inn- og útflutningi á ýmissi vöru.

Ástand bryggjunnar var orðin þannig að endurbygging hennar mátti ekki bíða mikið lengur, sér í lagi ef horfa átti til framtíðar með tilliti til dýpi fyrir útflutningsskip og betra viðleguplássi og skjóli fyrir Gretti. Einnig þurfti að huga að möguleika fyrir landtengingu rafdrifinna skipa.

Áður en verktaki gat farið af stað með rekstur nýs stálþils þurfti annar verktaki, Hagtak ehf., að undirbúa þilskurð og dýpkun fyrir stálreksturinn þar sem botninn á höfninni stendur á klöpp. Í þilskurði er klöppin fleyguð á ákveðnum kafla til að koma stálþilunum fyrir.

Vinna við þilskurð fyrir stálrekstur í júní 2022.

Vinna við þilskurð fyrir stálrekstur í júní 2022.

Staðan að morgni 27. júlí 2022, strax eftir bryggjuhrunið.

Staðan að morgni 27. júlí 2022, strax eftir bryggjuhrunið.

Bryggjuhrun vandar málið

Nýja stálþilið var hannað þannig að það yrði fimm metrum fyrir framan gömlu bryggjuna til að minnka áhættuna á mögulegu bryggjuhruni meðan framkvæmdir við þilskurðinn og reksturinn stæði yfir.

Því miður varð það raunin þegar gamla bryggjan gaf sig á 25 metra kafla aðfaranótt 27. júlí 2022. Stálþil gömlu bryggjunnar sprakk út og þar með hvarf í sjóinn stór hluti af stálþilskantinum auk þekjunnar. Strax var farið í björgunaraðgerðir með því að fylla í holuna sem myndaðist í þekjunni svo hægt yrði að bjarga löndunarkrana sem var í eigu Þörungaverksmiðjunnar og var fastur á hinum enda bryggjunnar. Aðgerðir hófust innan við hálfum sólarhringi frá hruni bryggjunnar og gert með aðstoð Skútabergs ehf. sem þá var við vegagerð í nágrenni Reykhóla. Björgunaraðgerðir gengu vel og löndunarkraninn var kominn af bryggjunni innan við sólarhring frá því bryggjan hrundi.

Beltakrani sem sá um rekstur stálþila kominn á verkstað um miðjan október 2022. Hér má sjá landfyllinguna sem var nauðsynleg fyrir athafnasvæði varktaka og sem bráðabirgðaaðstaða vegna löndunar Þörungaverksmiðjunnar.

Beltakrani sem sá um rekstur stálþila kominn á verkstað um miðjan október 2022. Hér má sjá landfyllinguna sem var nauðsynleg fyrir athafnasvæði varktaka og sem bráðabirgðaaðstaða vegna löndunar Þörungaverksmiðjunnar.

Erfiðleikar við stálþilsrekstur

Framkvæmdum við þilskurðinn var lokið á þessum tíma en stálrekstur fór af stað lok september 2022. Bryggjuhrunið hafði hins vegar töluverð áhrif á vinnuna. Gamla stálþilið lá nú á hafsbotni og erfitt var að meta hvar það væri þar sem það lá undir þrjú þúsund rúmmetrum af fyllingarefni sem keyrt var út í fyrstu björgunaraðgerðunum.

Vegna hrunsins þurfti að breyta hönnunarforsendum mannvirkisins þar sem ekki var mögulegt að ná 6 metra hönnunardýpi og því breytt í 5,5 metra dýpi. Þá bættust við fleiri verkefni. Til dæmis var þörf fyrir viðbótar dýptar- og borromælingar, nauðsynlegt að stækka landsvæði á bakvið gömlu innri bryggju til að búa til nýtt athafnasvæði fyrir verktann og bráðabirgða-löndunaraðstöðu fyrir Þörungaverksmiðjuna.

Aðrir verkþættir voru að brjóta og fjarlægja kant, polla og þekju á núverandi bryggju. Endurfylla bryggju og þjappa ásamt því að gera 95 metra langan grjótfláa utan um nýja landfyllingu. Reka þurfti niður 103 stálþilsplötur, ganga frá stagbitum og stögum og að lokum steypa um 145 m langan kant með pollum, kanttré, stigum og þyppum.

Verktakinn lenti í miklum erfiðleikum við að reka niður stálþilið þar sem gamla þilið hafði lent ofan í þilskurðinum þrátt fyrir að mikil vinna hafi verið lögð í að fjarlægja efni milli gömlu og nýju bryggjunnar. Kallaðar voru til langbómagröfur til að reyna að fleyga, klippa og moka upp gamla þilinu sem tókst að hluta. Samt sem áður var ekki hægt að reka allar stálþilsplötur niður að fullu og því fór töluverð vinna og tími í leiðréttingu á stálþilinu og steypu til að ná bryggjukantinum beinum. Stálþilsrekstrinum lauk í mars 2024 og var þá farið í að steypa kantbita og polla, og í uppsetningu á stigum og þybbum. Framkvæmdum við endurbyggingu bryggjunnar var lokið með úttekt í nóvember 2024.

Þekjan steypt

Annar verktaki, Geirnaglinn ehf. sá um framkvæmdir við þekju og lagnir. Skrifað var undir samning milli Reykhólahafnar og Geirnaglann í mars 2024. Helstu verkþættir voru lagnaleiðir fyrir vatn og rafmagn, steypa á nýju masturshúsi ásamt þremur undirstöðum fyrir ljósamaöstur og loks steypu um 1400 m2 þekju. Framkvæmdum við þekju var lokið með úttekt í september 2024 en eftir standa nokkur atriði við frágang sem verða kláruð núna í vor.

Unnið er að því að leggja rafmagn í nýju bryggjuna, masturshúsið og ljósmöstur og er stefnt að því að klára það í mars á þessu ári.

Hluti af gamla stálþilinu sem var fjarlægt með aðstop Sjótækni

Hluti af gamla stálþilinu sem var fjarlægt með aðstop Sjótækni

Búið að leggja allar lagnir og steypa þekju um miðjan september 2024.

Búið að leggja allar lagnir og steypa þekju um miðjan september 2024.

Köfunarskoðun leiðir ýmislegt í ljós

Þegar framkvæmdum við endurbyggingu Karlseyjarbryggju var lokið var gerð köfunarskoðun á nýju bryggjunni. Þá kom í ljós að hluti af gamla stálþilinu lá undir nýja stálinu og stóð upp úr botninum við nýja viðlegukantinn. Ákveðið var að fjarlægja það og var Sjótækni ehf. fengið til þess auk þess sem nýja stálþilið var styrkt aukalega að utanverðu. Framkvæmdir fóru af stað í október 2024 og var lokið í nóvember með úttekt og nýrri dýptarmælingu og neðansjávarmyndatöku.

Mælingarnar og myndatökurnar sýndu að gamla þilið hefur líklega skriðið fram af klapparhrygg og hefur hluti af klöppinni lent ofan í þilskurðinum með gamla stálþilinu.

Höfnin er nú aftur formlega opin fyrir siglingar og notkun.

Þessi grein birtist fyrst í Framkvæmdafréttum 1. tbl. 2025. Hlekkur á blaðið.