5. maí 2026
Dýpk­un gengur vel – siglt á flóð­inu síðdeg­is

Dýpkun í Landeyjahöfn gengur vel. Dýpið er það mikið að Herjólfur getur sætt sjávarföllum og stefnt er á að sigla í Landeyjahöfn frá Vestmannaeyjum síðdegis í dag þriðjudag.

Dýpið í höfninni var mælt í gærkvöldi. Herjólfur getur siglt á flóðinu síðdegis í dag og hefur Herjólfur ohf. gefið það út að siglt verði frá Vestmannaeyjum í Landeyjahöfn kl. 18:00.

Áfram verður unnið að dýpkun næstu daga og er ölduspá mjög góð fram yfir helgi og því líklegt að það náist að koma dýpinu í viðunanlegt horf næstu daga.

Mælingu frá í gærkvöldi má sjá hér fyrir neðan.

Mæling í Landeyjahöfn 4. maí

Mæling í Landeyjahöfn 4. maí