Vinnu við malbikun og yfirborðsmerkingar á nýja hringtorginu við Rjúpnaveg er lokið en verkið er hluti af framkvæmdum vegna nýs Arnarnesvegar. Þar með er vinnu við vegi og vegtengingar verksins lokið og búið að hleypa á bílaumferð. Hringtorgið er nú opið fyrir umferð en innri akreinin verður þó ekki tekin í notkun fyrr en frágangi á miðju hringtorgsins lýkur samkvæmt áætlun í næstu viku

Búið er að malbika nýja hringtorgið við Rjúpnaveg.
Að sögn Höskuldar Tryggvasonar, verkefnisstjóra hjá Vegagerðinni, er þetta mikilvægur áfangi í framkvæmdum vegna nýs Arnarnesvegar. „Hringtorgið tengir nýja hluta Arnarnesvegar við þann eldri, en næstu daga verður unnið við hellu- og þökulögn á torginu. Gert er ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki í þessari viku. Einnig er unnið við malbikun og frágang göngu- og hjólastíga við Arnarnesveg milli Breiðholtsbrautar og Rjúpnavegar,“ segir Höskuldur. Áformað er að opna göngu- og hjólastígana fyrir umferð um miðjan nóvember.
Áætluð verklok Arnarnesvegar og tengdra framkvæmda eru í nóvember 2026.
Arnarnesvegur (411), 3. áfangi, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, er hluti af Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins þar sem lögð er áhersla á að bæta innviði fyrir fjölbreytta ferðamáta og skapa öruggari leiðir um höfuðborgarsvæðið.
Verkefnið er unnið í samstarfi Vegagerðarinnar, Betri samgangna, Reykjavíkurborgar og Kópavogs, Veitna og Mílu.
Verktakar eru Loftorka og Suðurverk.
Eftirlit er í höndum VSB.
Ljósmyndir / Vilhelm Gunnarsson

Séð yfir nýjan Arnarnesveg í átt að Rjúpnavegi.

Séð yfir nýjan Arnarnesveg.

Framkvæmdir eru á lokametrunum.

Það styttist í að ný göngu- og hjólabrú verði opnuð.