Uppfært: Vegna veðurs verður ekki unnið við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum í dag, fimmtudaginn 28. maí og föstudaginn 29. maí. Því verða engar umferðartakmarkanir á brúnni í dag og fram til kl. 8 á mánudagsmorgun, 1. júní.
Áætlað er að hefja viðhaldsvinnu á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði (vegnúmer 1) þann 26. maí næstkomandi og að hún standi yfir til 16. júní. Unnið verður alla virka daga frá klukkan 8:00 á morgnana til klukkan 19:00 á kvöldin. Brúin verður lokuð yfir daginn vegna viðhaldsvinnunnar en það verður opnað fyrir umferð fjórum sinnum á dag, þrisvar sinnum í hálftíma í senn og einu sinni í klukkutíma. Brúin verður opin eftir að vinnu lýkur að kvöldi og þar til vinna hefst á ný að morgni. Hún verður einnig opin um helgar.

Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum.
Til stendur að mála brúna á þessu tímabili, það er að segja ef veður leyfir. Sá fyrirvari er gerður að ef ekki viðrar til málningarvinnu mun verkefnið frestast lengra inn í sumarið.
Unnið verður alla virka daga frá klukkan 8:00 á morgnana til klukkan 19:00 á kvöldin. Opið verður fyrir umferð á eftirfarandi tímum dags:
09:45 – 10:15
12:00 – 13:00
14:45 – 15:15
16:45 – 17:15
Lokanir ættu ekki að hafa mikil áhrif á neyðarflutninga þar sem unnt verður að opna fyrir umferð um brúna með skömmu fyrirvara ef aðstæður krefjast.
Upplýsingaskilti með leiðbeiningum og merkingum verða sett upp við brúna.
Vegagerðin hvetur vegfarenda til að sýna þolinmæði, fylgja merkingum og virða fyrirmæli á svæðinu.