Framkvæmdir við endurnýjun brúar yfir Helgustaðaá, sem er um átta kílómetrum austan við Eskifjörð, ganga vel. Nýja brúin er úr forsteyptum einingum, sem búið er að koma fyrir í sama brúarstæði og sú sem fyrir var. Þá verður vegurinn að brúnni endurbættur á um 220 m kafla. Áætlað er að verkinu ljúki um miðjan desember.

Nýja brúin er úr forsteyptum einingum.

Hér sjást einingarnar vel.
Framkvæmdir við nýja brú yfir Helgustaðaá hófust í september. Byrjað var á að steypa brúareiningarnar og gekk það verkefni vel. Í framhaldinu var gamla brúin rifin og allt gert tilbúið fyrir uppsetningu eininganna á verkstað. Þær voru síðan settar á sinn stað í gamla brúarstæðinu í lok október. Gert er ráð fyrir því að fyllt verði að brúnni á næstu dögum. Einnig var lagður bráðabirgðavegur og ræsi fram hjá framkvæmdasvæðinu.
Gamla brúin, sem var einbreið, var komin til ára sinna en hún var byggð árið 1951. Steypuvirkið var ónýtt af alkalískemmdum og því tímabært að byggja nýja brú.
Verktaki er Héraðsverk ehf. á Egilsstöðum. Björn Sveinsson hefur eftirlit með framleiðslu og uppsetningu eininga í brú. Vegagerðin er með eftirlit með jarðvinnu.

Einingarnar voru hífðar á sinn stað í október.

Einingar hýfðar af vörubíl.

Frá verkstað.

Nýja brúin verður mikil samgöngubót.