11. júní 2026
Brúin yfir Djúpa­fjörð boðin út

Vegagerðin hefur boðið út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 km kafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Bygging 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð er innifalin verkinu. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2028.

Tölvugerð mynd af brúnni yfir Djúpafjörð að sumri til.

Tölvugerð mynd af brúnni yfir Djúpafjörð að sumri til.

Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 10. júní 2026. Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu https://tendsign.is/ fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn  14. júlí 2026, sjá nánar hér.

Tölvugerð mynd af brúnni yfir Djúpafjörð að vetri til.

Tölvugerð mynd af brúnni yfir Djúpafjörð að vetri til.

Tölvugerð mynd af brúnni yfir Djúpafjörð að sumri til.

Tölvugerð mynd af brúnni yfir Djúpafjörð að sumri til.

Um brúna yfir Djúpafjörð

Brúin verður af sambærilegri gerð og brýrnar yfir Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi og Eldvatn í Skaftártungu, nema hún verður bæði lengri og hærri en þær, eða 210 m löng og 25 m á hæð. Brúin verður 8 metrum yfir sjávarmáli og því verður hægt að sigla undir hana.

Sérstaða brúarinnar felst í því að hún verður í einu hafi, án millistöpla, yfir sjó þar sem mikill munur er á flóði og fjöru og sterkir sjávarstraumar algengir.

Nokkrir möguleikar eru við byggingu brúar yfir sjó. Brúin hefur verið hönnuð þannig að með styrkingum er hægt að draga eða ýta út stálvirkinu í heilu lagi yfir brúarstæðið. Það væri þá gert með bráðabirgðaundirstöðum á 70 m bili eða nota pramma, sem hægt er að færa til, sem undirstöðu. Stálvirkið er þá smíðað í hlutum, flutt og sett saman á verkstað.

Aðrar aðferðir hafa einnig verið notaðar, eins og hreinlega að flytja brúna (stálvirkið) í heilu lagi á pramma frá verksmiðju að verkstað og setja á stöpla af prammanum.  Eftir að brúin er komin á sinn stað þá er komið að brúargólfinu, fyrst með forsteyptum einingum og síðan útlagðri steypu sem yfirborð og hluta af burði brúarinnar.

Tölvugerð mynd af brúnni yfir Djúpafjörð um nótt.

Tölvugerð mynd af brúnni yfir Djúpafjörð um nótt.

Tölvugerð mynd af brúnni yfir Djúpafjörð um hávetur.

Tölvugerð mynd af brúnni yfir Djúpafjörð um hávetur.