3. september 2024
Brúar­viðgerð­ir hafnar á ný

Brúarviðgerðir hafnar á ný

Viðgerðir á brúnni yfir Elliðaár við Árbæjarstíflu eru hafnar á ný. Stutt hlé var gert vegna veiðitímabilsins í Elliðaám en áætlað er að viðgerðum ljúki fyrir lok október.  

Á meðal þess sem verður gert í þessum viðgerðum er að bora teina djúpt inn í landstöpla til að tryggja aukna styrkingu og festingu. Einnig verða smíðuð sérhæfð mót sem nýtt verða til að steypa nýjan og sterkan hluta í brúnna. Þá verður lokið við að brjóta niður og fjarlægja gamla bríkurkant brúarinnar, smíða ný mót fyrir brúarkantinn og steypa nýjan og traustan brúarkant, auk þess að setja upp nýja ljósastaura og vegrið til að tryggja öryggi vegfarenda. Einnig verður skipt um allar þensluraufar á brúnni til að koma í veg fyrir frekari skemmdir og bæta endingu brúarinnar.

Viðgerðirnar á brúnni eru mjög umfangsmiklar og krefjast mikillar nákvæmni, en helstu ástæður fyrir þeim má rekja til þess að framhliðar landstöpla reyndust mikið skemmdar, þar sem kambstál í stoðunum var orðið tært og ónýtt. Þá eru þensluraufar ofan við landstöpla í afar lélegu ásigkomulagi, sem hefur valdið því að vatn hefur lekið óhindrað niður í steypuna undir, sem hefur haft mjög neikvæð áhrif á steypuna. Með tímanum hefur steypan í brúarstöplunum mettaðst af vatni og orðið fyrir frostskemmdum, sem munu nú verða lagaðar til að tryggja langlífi brúarinnar.

Þegar er búið að brjóta niður og fjarlægja lélega steypu og ryðgað stál sem var utan um um 5 metra háan landstöpulinn á Árbæjarmegin. Þá hefur verið lyft brúnni varlega upp og farið varlega í að skipta um legur á báðum landstöplum, auk þess sem unnið hefur verið að lagfæringum í kringum legurnar til að tryggja að brúin standist vel komandi álag og veðurfarslegar áskoranir.