Framkvæmdir við byggingu tveggja steyptra brúa á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit hafa staðið yfir frá því í lok síðasta árs. Verkið hefur að mestu gengið samkvæmt áætlun en óvæntar jarðvegsaðstæður hafa kallað á breytingar á hönnun og framkvæmdum.

Hér sést vel hvernig vegurinn mun þvera Djúpafjörð til hægri og Gufufjörð til vinstri. Mynd: Haukur Sigurðsson
Brýrnar tvær eru annars vegar 58 metra löng brú yfir Djúpafjörð við Grónes og hins vegar um 130 metra löng brú yfir Gufufjörð. Framkvæmdirnar eru hluti af umfangsmikilli uppbyggingu Vestfjarðavegar um Gufudalssveit sem miðar að því að stytta vegalengdir, bæta umferðaröryggi og tryggja greiðari samgöngur um sunnanverða Vestfirði.
Norska verktakafyrirtækið Leonhard Nilsen & Sønner AS (LNS) annast framkvæmdirnar samkvæmt samningi við Vegagerðina sem undirritaður var í október 2025. Samningsupphæðin er um 1,85 milljarðar króna.
Brúarsmíði í Gufufirði vel á veg komin
Framkvæmdir hófust um mánaðamótin nóvember-desember 2025 þegar byrjað var að grafa fyrir undirstöðum brúarinnar í Gufufirði. Í kjölfarið var komið upp vinnuaðstöðu og steypustöð á svæðinu.
Vinna við undirstöður brúarinnar gekk vel á vormánuðum. Í lok maí var búið að steypa báða millistöpla brúarinnar og í júní var unnið við eystri landstöpul hennar.
Í júlí var unnið áfram við vestara landstöpul brúarinnar, auk þess sem hafin var framleiðsla á steyptum bitum undir brúargólfið. Í júlí hófst einnig vinna við mót yfirbyggingarinnar og undirstöður þeirra. Í lok mánaðarins var búið að fylla að landstöplinum og ljúka við gerð verkpalla fyrir undirslátt yfirbyggingarinnar.

Framkvæmdir við 130 metra langa brú yfir Gufufjörð. Mynd: Haukur Sigurðsson

Norska verktakafyrirtækið Leonhard Nilsen & Sønner AS (LNS) annast framkvæmdirnar. Mynd: Haukur Sigurðsson
Óvæntar jarðvegsaðstæður kalla á breytingar
Við framkvæmdirnar hafa komið í ljós erfiðari jarðvegsaðstæður en gert var ráð fyrir við hönnun brúanna.
Í Djúpafirði reyndist mun lengra niður á fasta klöpp en áætlað hafði verið. Upphaflega stóð til að grafa niður á klöpp og steypa undirstöður brúarinnar þar, en þegar ljóst varð að klöppin lá á um átta metra dýpi var ákveðið að breyta hönnuninni.
Í stað þess að grafa niður á klöpp var ákveðið að bora niður stálstaura sem síðan verða járnbentir og fylltir með steypu. Sérhæfður verktaki var fenginn til verksins og lauk borun stauranna 3. júlí.
Svipaðar áskoranir komu upp við gröft fyrir vestara landstöpul brúarinnar í Gufufirði. Þar reyndist einnig vera dýpra niður á klöpp á hluta svæðisins en gert hafði verið ráð fyrir. Af þeim sökum þurfti meira af steypu en áætlað var. Meðal annars varð að steypa sérstakar undirstöður undir landstöpulinn. Alls fóru 186 rúmmetrar af steypu í undirbúning undirstaðanna.
Veðurfar hefur einnig haft áhrif á framkvæmdina. Í lok mars gekk óveður yfir svæðið og sjór gekk yfir vinnufyllingu í Gufufirði með þeim afleiðingum að rof myndaðist í fyllingunni. Verktakinn lagfærði skemmdirnar en óveðrið olli nokkrum töfum.
Fjölmennur vinnustaður
Talsverður mannafli hefur komið að framkvæmdunum og hafa að jafnaði um 26 til 37 manns verið við vinnu á verkstað. Auk þess hefur verið unnið að forbindingu járna í Reykjavík.
Verktakinn hefur komið upp vinnubúðum, trésmíðaverkstæði og vélaverkstæði á svæðinu. Þá var í sumar unnið að uppsetningu annarrar og afkastameiri steypustöðvar til að anna steypuframkvæmdum.

Frá steypuframkvæmdum á brúnni yfir Gufufjörð í október 2026. Mynd: Verkís

Myndir frá steypuframkvæmdum á brúnni yfir Gufufjörð í október 2026. Myndir: Verkís

Myndir frá steypuframkvæmdum á brúnni yfir Gufufjörð í október 2026. Myndir: Verkís

Myndir frá steypuframkvæmdum á brúnni yfir Gufufjörð í október 2026. Myndir: Verkís
Samkeppnisviðræður um brú yfir Djúpafjörð
Bygging brúanna tveggja er næstsíðasti áfanginn í framkvæmdum á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit.
Í fyrstu áföngum verksins hefur meðal annars verið byggð brú yfir Þorskafjörð, lagður vegur um Teigsskóg og unnið að nýjum vegfyllingum yfir Gufufjörð og Djúpafjörð.
Síðasti áfangi framkvæmda á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit felst í byggingu 210 metra langrar netbogabrúar yfir Djúpafjörð og lagningu um 4,6 kílómetra vegarkafla. Verkið var boðið út í júní síðastliðnum og bárust tvö tilboð sem bæði voru verulega yfir áætluðum verktakakostnaði. Vegagerðin hefur því hafnað tilboðunum en ákveðið að hefja samkeppnisviðræður við báða bjóðendur.

Tölvugerð mynd af nýrri bogabrú yfir Djúpafjörð.