16. nóvember 2026
Brúar­grind Ölfusár­brúar komið á sinn stað – mynd­band

Mjög vel gekk að draga 330 m langa og 2000 tonna þunga brúargrind af austari bakka Ölfusár yfir á vestari bakkann. Í fréttinni má finna myndband þar sem verkinu er líst og um það fjallað.

Við færsluna voru notaðir öflugir vökvadrifnir tjakkar sem drógu brúargólfið áfram eftir sérstökum dráttarlegum. Brúarggrindin hvíldi á púðum og rann þannig eftir sléttum stálplötum til að koma í veg fyrir skemmdir á yfirborði stálbitanna.

Tjakkarnir drógu brúargólfið áfram um hálfan metra í einu og er áætlað að hægt verði að færa það um tíu metra á klukkustund við bestu aðstæður en öll aðgeðin tók mun styttir tíma en búið var að áætla.

Til að styðja við brúargólfið á meðan það var dregiðyfir ána var komið fyrir stóru bráðabirgðamastri ofan á því. Frá mastrinu lágu stálkaplar sem héldu uppi fremri enda brúargólfsins meðan á færslunni stóð.