Brúin yfir Breiðholtsbraut hefur verið opnuð fyrir umferð. Í nótt var unnið að færslu umferðarinnar og gekk allt samkvæmt áætlun. Fyrsti bíllinn fór yfir brúna snemma í morgun. Breiðholtsbraut er þó enn framkvæmdasvæði og ökumenn beðnir um að aka með gát.

Ný brú hefur verið tekin í notkun.
Gatnamótum Breiðholtsbrautar og Vatnendahvarfs hefur verið lokað fyrir umferð en þau verða nú endurhönnuð og opna í breyttri mynd í september.
Í nóvember er áformað að opna nýja Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar.
Ökumönnum er bent á að aka til og frá Vatnsendahvarfi í gegnum Vatnsendaveg, nýtt hringtorg við Arnarnesveg og ný gatnamót á Breiðholtsbraut.
Um er að ræða stóran áfanga vegna framkvæmda við Arnarnesveg, 3.áfanga, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar.

Ný gatnamót frá Arnarnesvegi inn á Breiðholtsbraut.