8. apríl 2026
Breyt­ingar á akstri lands­byggðar­vagna vegna lokunar Hval­fjarðar­ganga

Hvalfjarðargöng verða lokuð á kvöldin frá kl. 21:30 til kl. 06:00, frá sunnudagskvöldum til föstudagsmorgna vegna nauðsynlegrar endurnýjunar á lýsingu. Áætlað er að verkinu ljúki 29. maí. Breytingar verða á akstri landsbyggðarvagna á leiðum 50 og 59 meðan á þessum framkvæmdum stendur.

Breytingar á leið 50

Sunnudaga til fimmtudaga falla tvær síðustu ferðir dagsins niður.  

Síðasta ferð dagsins á virkum dögum frá Mjódd kl. 20:54 er á mörkum þess að komast í gegnum göngin fyrir lokun þeirra klukkan 21:30 en fengist hefur undanþága til að aka þar í gegn .

Í umfjöllun um málið hefur verið vísað til þess að strætó hafi almenna undanþágu frá lokuninni. Rétt er að undanþágan á aðeins við um þessa tilteknu ferð samkvæmt gildandi tímatöflu. Aðrar ferðir falla niður í samræmi við lokunartíma.

Ferðir sem falla niður mánudaga til fimmtudaga:

20:34  Borgarnes-Mjódd

22:00  Borgarnes-Mjódd

22:09  Mjódd-Borgarnes

23:35  Mjódd-Akranes

Ferðir sem falla niður á sunnudögum:

19:40  Borgarnes-Mjódd

21:40  Akranes-Mjódd

21:20  Mjódd-Borgarnes

22:50  Mjódd-Akranes

 

Breytingar á leið 59

Sunnudagsferð verður flýtt um 10 mínútur frá Borgarnesi og Hólmavík.

Á akstursleiðinni Hólmavík-Borgarnes mun vagninn tengjast leið 57 kl.19:30 í Borgarnesi í stað leiðar 50 kl.19:40.

Áætlun breytist eftirfarandi:

Brottför Borgarnes verður 14:50 í stað 15:00

Brottför Hólmavík verður 17:03 í stað 17:13

 

Heildaruppfærsla á lýsingarbúnaði ganganna

Um er að ræða heildaruppfærslu á lýsingarbúnaði ganganna. Eldri búnaður verður endurnýjaður og settir upp dimmanlegir LED-lampar sem uppfylla nútímakröfur um lýsingu og öryggi í jarðgöngum. Núverandi lýsing í Hvalfjarðargöngum hefur verið í notkun frá opnun þeirra. Framleiðslu á perum fyrir þann búnað hefur nú verið hætt og birgðir að klárast. Með aukinni umferð um göngin er orðið brýnt að ráðast í heildaruppfærslu á lýsingunni, svo hún uppfylli nútímakröfur og tryggi sem best öryggi allra vegfarenda.

 

 

 

Breytingar verða á akstri landsbyggðarvagna á leiðum 50 og 59 vegna lokunar Hvalfjarðaganga.

Breytingar verða á akstri landsbyggðarvagna á leiðum 50 og 59 vegna lokunar Hvalfjarðaganga.

Hvalfjarðargöngin voru opnuð árið 1998.

Hvalfjarðargöngin voru opnuð árið 1998.