Vegagerðin og Veitur hafa auglýst eftir tilboði á for- og verkhönnun bráðabirgðatengingar Borgarlínu um Nesbrautarbrú í Reykjavík, ásamt breytingum og aðlögun núverandi vegstæðis, gatnamóta og stíga, sem munu ná frá gatnamótum Arnarhlíðar við Hlíðarenda að Snorrabraut við Burknagötu, með tengingu við SV-rampa frá Miklubraut. Verkefnið er hluti af Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Í verkinu felst hönnun sérakreina Borgarlínu um Arnarhlíð við Hlíðarenda og hönnun á tímabundinni lausn sem mun tengja 1. lotu Borgarlínu milli Arnarhlíðar og Burknagötu þar til Miklubrautargöng verða tekin í notkun.
Verkið felst í megindráttum í for- og verkhönnun á akbraut og akreinum Borgarlínu, ásamt stígum og aðlögun núverandi vega, stíga og gatnamóta, hönnun undirganga, umferðargreiningum- og stýringum ásamt breytingum á lögnum Veitna ohf.
Helstu verkþættir eru: