Þótt umferðin á höfuðborgarsvæðinu hafi aðeins aukist um tæpt prósent í ágúst hefur umferðin eigi að síður aldrei mælst meiri. Aukning umferðar er minni en sú sem varð á Hringveginum í ágúst. Umferðin í ár hefur einungis aukist um 0,2 prósent en umferð hefur dregist saman í nokkrum mánuðum í ár, eða í fjórum mánuðum af átta.
Milli mánaða 2025 og 2026
Aukning varð í umferð á höfuðborgarsvæðinu, í ágúst miðað við sama mánuð á síðasta ári ef marka má þrjú lykilsnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu. Alls mældist aukningin 0,6%, fyrir mælisniðin þrjú. Aldrei hefur áður hefur mælst jafn mikil umferð í umræddum mánuði, á þessu mælisniðum . Benda má þó á að hlutfallsleg aukning var umtalsverð meiri á Hringvegi.
Tvö mælisniðanna sýndu aukningu á umferð en samdráttur varð um mælisnið á Hafnarfjarðarvegi við Kópavogslæk (-3,7%). Aukning varð mest við mælisnið á Reykjanesbraut við Dalveg í Kópavogi (2,5%).
Umferð eftir vikudögum 2026
Mest var umferðin á fimmtudögum en minnsta á sunnudögum, í nýliðnum mánuði.
Umferð dróst mest saman á miðvikudögum (-3,5%) en jókst mest á föstudögum (4,3%) miðað við ágúst 2025.
Umferð frá áramótum
Umferð hefur aukist um 0,2% frá áramótum miðað við á sama tíma árið 2025. Almennt er að draga úr áætlaðri aukningu miðað við horfur í upphafi árs.
Athygli er vakin á því að öll gögn eru grófrýnd, sem gætu tekið breytingum, við endanlega yfirferð.

Hb-samanlagt-ágúst

Hb-hlutfall-ágúst

Hb-mánuðir-ágúst

Hb-vikudagar-ágúst

Hb-vísitala-ágúst