Vegna mikilla slitlagsskemmda hafa þungatakmarkanir verið settar á víða á Vesturlandi og Vestfjörðum. Viðauki 1 hefur verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 7 tonn og 10 tonn. Þetta tók gildi í dag miðvikudaginn 11. mars á hádegi.
Þungatakmarkanirnar eru á eftirtöldum vegum á Vesturlandi og Vestfjörðum.
60 Vestfjarðavegi frá Dalsmynni að vegamótum Djúpvegar 61 í Króksfirði verður ásþungi takmarkaður við 7 tonn
Aðrir vegir með ásþunga takmarkaður við 10 tonn
54 Snæfellsnesvegi frá Borgarnesi vestur yfir Fróðárheiði og á norðanverðu Snæfellsnesi.
574 Útnesvegi
58 Stykkishólmsvegi
56 Vatnaleið
60 Vestfjarðavegi frá vegamótum Snæfellsnesvegar 54 til Ísafjarðar við Djúpveg 61
68 Innstrandavegur
62 Barðastrandarvegi
63 Bíldudalsvegi
61 Djúpvegi frá Vestfjarðavegi 60 í Króksfirði til Skutulsfjarðar, að Flugvallarvegi 631.
51 Akrafjallsvegi að norðan ( Akranes – Hringvegur )
50 Borgarfjarðarbraut ( Seleyri – Hringvegur við Bauluskála )
Þá hafa einnig verið settar á þungtakmarkanir á Hringvegi frá kl. 16:00 í dag miðvikudag:
Hringvegur (1) frá Fáskrúðsfjarðarvegamótum að Kirkjubæjarklaustri.
Á morgun bætist síðan við að ásþungi verður takmarkaður við 10 tonn hér:
Hringvegur (1) frá Hvolsvelli að Kirkjubæjarklaustri.

Illa farið slitlag á Vestfjarðavegi (60)

Illa farið slitlag á Vestfjarðavegi (60)