4. júní 2026
Álit um umhverf­ismat Sunda­brautar komið út

Húsnæðis,- mannvirkja og skipulagsstofnun (HMS) hefur gefið út álit um umhverfismat vegna Sundabrautar en skýrslan fór til umsagnar hjá Skipulagsstofnun í október í fyrra. Það er mat HMS að framlögð gögn, auk umsagna og frekari upplýsinga sem Vegagerðin lagði fram að loknum kynningartíma varpi fullnægjandi ljósi á umhverfisáhrif framkvæmdarinnar.

Áhrifasvæði Sundabrautar.

Áhrifasvæði Sundabrautar.

Álit um umhverfismat Sundabrautar markar mikilvægan áfanga í undirbúningi verkefnisins og skapast nú grundvöllur fyrir áframhaldandi vinnu við næstu skref þess. Vegagerðin er framkvæmdaraðili Sundabrautar og ber ábyrgð á umhverfismati framkvæmdarinnar en verkefnið er unnið í samstarfi við Reykjavíkurborg.

Í áliti HMS kemur fram að lagning Sundabrautar sé umfangsmikið og flókið verkefni. Umhverfismat framkvæmdarinnar er viðamikið og felur í sér úrlausn fjölda ólíkra álitaefna. Þar kemur fram að Vegagerðin hafi aflað umfangsmikilla gagna til að upplýsa um umhverfisáhrif framkvæmdarinnar og fyrir liggur fjöldi umsagna um málið frá einstaklingum, félagasamtökum, stofnunum og öðrum hagsmunaaðilum. Í mati á umhverfisáhrifum dregur Vegagerðin fram að enn ríkir óvissa um ýmsa þætti sem teknir verða til nánari skoðunar á næstu stigum. Þá verða mótvægisaðgerðir útfærðar eftir þörfum í tengslum við áframhaldandi hönnun, skipulagsferli og veitingu framkvæmdaleyfa. Í áliti sínu áréttar HMS þá óvissu sem framkvæmdaraðili hefur dregið fram.

„Við hjá Vegagerðinni erum mjög ánægð með þennan stóra áfanga í undirbúningi Sundabrautar og munum nú fara yfir efnisatriði álitsins í samráði við Reykjavíkurborg og innviðaráðuneytið og meta hvaða áhrif niðurstöðurnar hafa á næstu skref í undirbúningi Sundabrautar,“ segir Guðmundur Valur Guðmundsson, formaður verkefnisstjórnar um undirbúning Sundabrautar.

Nú þegar álit HMS liggur fyrir geta ríki og Reykjavíkurborg hafið viðræður um leiðarval, sem er forsenda þess að geta haldið áfram undirbúningi verksins, með útboði á hönnun og framkvæmd.

Tveir kostir hafa verið til skoðunar vegna þverunar Kleppsvíkur, brú og jarðgöng. Í áliti HMS kemur m.a. fram að brú styðji betur við vistvæna samgöngumáta en hafi í för með sér meira umfang mannvirka á yfirborði. Það er mat Vegagerðarinnar að brú sé sá valkostur sem uppfylli markmið framkvæmdarinnar og samræmist jafnframt betur öðrum verkefnum sem eru í undirbúningi á höfuðborgarsvæðinu.

Nánari upplýsingar um umhverfismatið og gögn um Sundabraut má sjá á Sundabrautin.is.