18. febrúar 2026
Álags­próf­anir á brúnni yfir Þjórsá

Álagsprófanir á brúnni yfir Þjórsá

Vegagerðin hefur átt samstarf við Landsvirkjun vegna fyrirhugaðra flutninga á efni og tækjum í tengslum við uppbyggingu vindorkuvers við Vaðöldu. Liður í þeim undirbúningi voru álagsprófanir á brúnni yfir Þjórsá sem fóru fram þriðjudaginn 10. febrúar síðastliðinn. Prófanirnar voru gerðar til að staðfesta forsendur og niðurstöður reiknilíkana við mat á burðarþoli brúarinnar og öryggi gagnvart þyngstu fyrirhuguðu flutningunum.

Gerðar voru álagsprófanir á brúnni í síðustu viku.

Gerðar voru álagsprófanir á brúnni í síðustu viku.

Niðurstöður mælinganna verða notaðar til að ákveða hvort veita megi heimildir til efnisflutninga um brúna með þyngri farm en fordæmi eru fyrir, eða allt að 270 tonna heildarþyngd, án þess að ráðast þurfi í frekari aðgerðir. Þá kemur til greina að styrkja brúna á völdum stöðum, ef niðurstöður álagsprófana benda til þess að brúin hafi ekki þann burð sem þarf. Stefnt er að því að vinna úr mælingum og uppfæra líkön fyrir lok mánaðarins.

Tæknimenn frá dönsku verkfræðistofunni Rambøll og mælingamenn frá Verkís, í samstarfi við brúarvinnuflokk Vegagerðarinnar, settu upp mælibúnað á brúna en það var liður í undirbúningi álagsprófananna. Meðal annars voru settir upp hröðunarmælar, streitunemar, hallamælar á undirstöður auk þess sem niðurbeygjur voru mældar með alstöðvum.

Verkefnið er umfangsmikið og hefur undirbúningur staðið yfir í langan tíma. Vegagerðin hefur unnið að undirbúningi mælinganna frá því seint á síðasta ári og hefur fjölmargt starfsfólk komið að þeirri vinnu.

 

Mælibúnaður var settur á brúna.

Mælibúnaður var settur á brúna.

Mælibúnaður var settur á brúna.

Mælibúnaður var settur á brúna.

Fjölmargir hjá Vegagerðinni komu að verkefninu.

Fjölmargir hjá Vegagerðinni komu að verkefninu.

Mælingamenn frá Verkís komu að verkefninu, auk tæknimanna frá Rambøll.

Mælingamenn frá Verkís komu að verkefninu, auk tæknimanna frá Rambøll.

Stefnt er að því að vinna úr mælingum og uppfæra líkön fyrir lok mánaðarins.

Stefnt er að því að vinna úr mælingum og uppfæra líkön fyrir lok mánaðarins.

M.a. voru settir upp hröðunarmælar, streitunemar og hallamælar.

M.a. voru settir upp hröðunarmælar, streitunemar og hallamælar.

Bíllinn lestaður.

Bíllinn lestaður.

Prófanir undirbúnar.

Prófanir undirbúnar.

Ekið af stað með farminn.

Ekið af stað með farminn.

 Gamla brúin með Heklu í baksýn.

Gamla brúin með Heklu í baksýn.