28. júlí 2026
Áfram unnið við Vest­fjarða­veg

Framkvæmdir við Vestfjarðaveg eru í fullum gangi. Unnið er að brúargerð í Gufufirði og Djúpafirði auk framkvæmda við þriðja áfanga á Dynjandisheiði. Tafir og breytingar á hönnun hafa haft áhrif á framvinduna en nokkrir mikilvægir áfangar eru fram undan.

Tölvugerð mynd af nýrri bogabrú yfir Djúpafjörð.

Tölvugerð mynd af nýrri bogabrú yfir Djúpafjörð.

Í Gufudalssveit vinnur verktakinn Leonhard Nilsen & Sønner as að byggingu tveggja brúa. Annars vegar 58 m langrar brúar á Djúpafjörð við Grónes og hins vegar um 130 m langrar brúar á Gufufjörð. Innifalið í verkinu er rif á núverandi 119 m bráðabirgðabrú á Gufufirði ásamt efnisflutningum úr núverandi vinnuplönum og gerð grjótvarnar/rofvarnar.

Vinnan við brúna í Gufufirði fór hægt af stað en mannskap hefur fjölgað og stefnt er að því að vinna upp tafir á verkinu.

Í Gufufirði er búið að steypa tvo millistöpla og eystri landstöpullinn. Unnið er við fleygun á klöpp í vestari landstöpli og uppslátt á brúardekki. Búið er að forsmíða mót undir brúardekk og forbinda járn í dekkið og standa vonir til að hægt verði að steypa það í september.

Í Djúpafirði kom í ljós að mun lengra var niður á klöpp en gert var ráð fyrir og því var hönnun breytt og boraðir niður staurar undir eystri landstöpul og millistöpul. Búið er að bora niður staurana og hægt að hefjast handa við uppsteypu. Vinna við vestari landstöpul er óbreytt og verður steypt á klöpp eins og hönnun gerði ráð fyrir. Unnið er að greftri fyrir vestari landstöpul. Stefnt er að því að uppsteypu verði lokið í október.

Unnið er að uppsetningu annarrar steypustöðvar og verður þá afkastageta orðin viðunandi.

Framkvæmdir við brú yfir Gufufjörð. Í baksýn má sjá 119 m langa bráðabirgðabrú.

Framkvæmdir við brú yfir Gufufjörð. Í baksýn má sjá 119 m langa bráðabirgðabrú.

Hér sést gamli vegurinn hlykkjast samhliða nýja vegstæðinu.

Hér sést gamli vegurinn hlykkjast samhliða nýja vegstæðinu.

Síðasta brúin boðin út í júní

Í byrjun júní var boðin út 210 metra löng bogabrú yfir Gufufjörð sem er hluti af nýbyggingu Vestfjarðavegar á 4,6 km kafla. Enn sem komið er er ekki búið að opna tilboðin, en umsóknarfrestur er til 25. ágúst næstkomandi.

Brúin verður af sambærilegri gerð og brýrnar yfir Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi og Eldvatn í Skaftártungu, nema hún verður bæði lengri og hærri en þær, eða 210 m löng og 25 m á hæð. Brúin verður 8 metrum yfir sjávarmáli og því verður hægt að sigla undir hana.

Sérstaða brúarinnar felst í því að hún verður í einu hafi, án millistöpla, yfir sjó þar sem mikill munur er á flóði og fjöru og sterkir sjávarstraumar algengir. Tölvugerða mynd af búnni má sjá hér að ofan.

Þverunarframkvæmdir í Gufudalssveit.

Þverunarframkvæmdir í Gufudalssveit.

Vegaframkvæmdir við Dynjandisvog.

Vegaframkvæmdir við Dynjandisvog.

Þriðji og síðasti kafli Dynjandisheiðar

Framkvæmdir við Dynjandisheiði hafa gengið hægar en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þetta er þriðji og síðasti áfangi nýs Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði, samtals um 7,2 km í nýju vegstæði, auk endurbóta á 1 km kafla Dynjandavegar sem liggur að fossinum Dynjandi. Þá felur verkið einnig í sér nýtt keðjunarplan og áningarstað.

Staða framkvæmda í byrjun júlí var sú að unnið var við útlagningu styrktarlags á 2,6 km kafla, þar af um 800 m á Dynjandavegi og um 1.800 m á Vestfjarðavegi um Búðarvík. Unnið var að undirbúningi stálplöturæsis sem sett verður í Dynjandisá neðan við Kálfeyrartjörn. Jafnframt var unnið við borun, sprengingar og fyllingar. Búið er að sprengja um 200 þúsund rúmmetra, mala um 8.000 rúmmetra af burðarlagi og um 4.000 rúmmetra af styrktarlagi. Stefnt var á að klæða 2,6 km kafla um miðjan júlí.

 

Þessi grein birtist fyrst í Framkvæmdafréttum 3. tbl. 2026. Hlekkur á blaðið.

Horft yfir Arnarfjörð yfir nýja vegstæðið.

Horft yfir Arnarfjörð yfir nýja vegstæðið.

Vegurinn inn að fossinum Dynjanda verður byggður upp. Myndir: Haukur Sigurðsson

Vegurinn inn að fossinum Dynjanda verður byggður upp. Myndir: Haukur Sigurðsson