Það hefur verið mikið um að vera í umhverfismálum í rekstri Vegagerðarinnar undanfarið ár. Á starfsstöðvum um allt land hafa starfsmenn unnið markvisst að því að gera reksturinn umhverfisvænni sem hluta af Grænu skrefunum, en yfirverkstjórar á hverri þjónustustöð leiða vinnuna með stuðninga frá deild umhverfis og sjálfbærni.

default

Höfundur greinar er Anna Margrét Sigurbergsdóttir, sérfræðingur á sjálfbærnideild Vegagerðarinnar.
Græn skref í ríkisrekstri eru aðgerðarammi stjórnvalda sem styður opinberar stofnanir við að draga úr umhverfisáhrifum sinnar starfsemi. Verkefnið byggir á fimm skrefum sem leiðbeina stofnunum við að innleiða sjálfbærni í rekstri, allt frá einföldum aðgerðum á borð við bætta flokkun og vistvæn innkaup yfir í samræmda umhverfisstjórnun og stöðugar umbætur.
Síðasta ár hafa verið stigin fjölmörg skref í umhverfisúrbótum. Þar má nefna bætta flokkun úrgangs, aukna áherslu á vistvæn innkaup og markvissari nýtinga aðfanga. Á Patreksfirði, Hvammstanga, Reyðarfirði og Höfn var ný og endurbætt flokkunaraðstaða tekin í notkun á nýju ári og Borgarnes fylgir þar fast á eftir.
Einnig hefur verið unnið að því að koma vegstikum í endurvinnslu í auknum mæli í samstarfi við Pure North í Hveragerði. Þar eru meðal annars nýttar tómar flutningsferðir víða af landinu, sem dregur úr kostnaði og kolefnisspori. Með þessari einföldu en hagkvæmu lausn er nýting núverandi innviða bætt og stuðlað að skilvirkari rekstri samhliða auknum umhverfisávinningi.
Vistvæn innkaup hafa jafnframt verið tekin upp á starfsstöðvum um allt land. Innleiðingin hefur gengið vel þrátt fyrir takmarkað framboð á sumum svæðum, ekki síst vegna jákvæðs og lausnamiðaðs viðhorfs yfirverkstjóra og starfsfólks.
Fram undan er vinna við að styrkja grunninn og hrinda næstu skrefum í framkvæmd. Fyrir árslok 2026 ljúka stærri starfsstöðvar fyrstu þremur skrefunum og minni starfsstöðvar fyrstu teimur. Til lengri tíma er markmiðið að stærri starfsstöðvar ljúki öllum fimm skrefunum fyrir árslok 2028 en minni starfsstöðvar þeim skrefafjölda sem hæfir starfsemi þeirra. Súluritið sýnir stöðu grænu skrefanna innan Vegagerðarinnar.
Verkefnið hefur notið víðtæks stuðnings og flestar starfsstöðvar hafa þegar náð þeim markmiðum sem sett voru fyrir árið 2026. Sá árangur endurspeglar aukna áherslu á sjálfbærni í starfsemi Vegagerðarinnar og er sérstaklega ánægjulegur í ljósi þess að innleiðing skrefanna felur í sér breytingar á verklagi og aukna vitund í daglegum rekstri.
Á þessum grunni verður haldið áfram að byggja upp og þróa þann árangur sem þegar hefur náðst. Núverandi staða markar því ekki endapunkt heldur mikilvægan áfanga í langri vegferð.
Þessi grein birtist fyrst í Framkvæmdafréttum 2. tbl. 2026. Hlekkur á blaðið
