12. október 2026
Aldrei meiri umferð í sept­ember á höfuð­borgar­svæð­inu

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í september reyndist tveimur prósentum meiri en í sama mánuði í fyrra. Aldrei hefur mælst meiri umferð í september, Þrátt fyrir það hefur umferðin frá áramótum aðeins aukist um 0,4 prósent sem er minna en útlit var fyrir í upphafi árs.

Milli mánaða 2025 og 2026
Aukning varð í umferð á höfuðborgarsvæðinu, í september, miðað við sama mánuð á síðasti ári ef marka má þrjú lykilsnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu. Alls mældist aukning um 2% fyrir mælisniðin þrjú. Aldrei hefur áður mælst jafn mikil umferð í umræddum mánuði, í þessum mælisniðum. Benda má á að hlutfallsleg aukning var aðeins meiri en á Hringvegi (1,8%) milli mánaða.

Öll mælisniðin sýndu aukningu á umferð en mesta aukningin var á Vesturlandsvegi ofan Ártúnsbrekku eða um 3%.

Umferð eftir vikudögum 2026
Mest var umferðin á föstudögum og minnst á sunnudögum í september.

Umferð dróst lítillega saman á föstudögum en jókst mest á sunnudögum eða um rúmlega 6%.

Umferð frá áramótum
Umferð hefur aukist um 0,4% frá áramótum miðað við sama tíma árið 2025. Almennt er að draga úr áætlaðri aukningu miðað við horfur í upphafi árs.

 

Athygli er vakin á því að öll gögn eru grófrýnd og gætu tekið breytingum við endanlega yfirferð.

Hb-samanlagt-september

Hb-samanlagt-september

Hb-hlutfall-september

Hb-hlutfall-september

Hb-vikudagar-september

Hb-vikudagar-september

Hb-mánuðir-september

Hb-mánuðir-september

Hb-vísitala-september

Hb-vísitala-september