22. júní 2026
Rafmagnsvagnar aka um Suður­land

Mánudaginn 22, júní mun hópferðafyrirtækið GTS ehf., sem annast akstur landsbyggðarvagna á Suðurlandi samkvæmt samningi við Vegagerðina, standa fyrir móttöku í tilefni af komu nýrra rafmagnsvagna.

Vagnarnir eru með 460 KW rafhlöður en drægni þeirra er u.þ.b. 500 km miðað við góðar aðstæður.

Vagnarnir eru með 460 KW rafhlöður en drægni þeirra er u.þ.b. 500 km miðað við góðar aðstæður.

Þann 1. janúar 2026 tóku í gildi breytingar á leiðakerfi landsbyggðarvagna með nýjum útboðssamningum. Hluti breytinganna fólst í að undirbúa leiðakerfi landsbyggðarvagna fyrir innleiðingu hreinorku. Var það m.a. gert með aðgreiningu akstursleiða sem sinna annars vegar vinnu- og skólasókn og hins vegar langferðum. Með því skapaðist svigrúm til að hlaða vagna milli ferða.

Rafmagnsvagnar á Suðurlandi

GTs ehf. sem var lægstbjóðandi á Suðurlandi, lagði til rafmagnsvagna á nær öllum akstursleiðum á samningstímabilinu. Vegagerðin fagnar því framtaki og þeirri mikilvægu þróun sem það markar fyrir almenningssamgöngur á landsbyggðinni.

Um er að ræða vagna af gerðinni Yutong IC12 sem eru 43 sæta með hjólastólalyftum.

Vagnarnir eru búnir öllum helstu nútímalegum þægindum og eru auk þess með myndavélar sem mynda 360° umhverfis vagninn og auka þar með öryggi við akstur.

Vagnarnir eru með 460 KW rafhlöður en drægni þeirra er u.þ.b. 500 km miðað við góðar aðstæður. Nú þegar hafa vagnarnir farið sínar jómfrúarferðir, og þ.m.t. legginn Selfoss – Reykjavík – Selfoss – Vík – Selfoss, allt á einni og sömu hleðslunni. Vagnarnir taka við rúmlega 300 KW í hleðslu og tekur um 3 klukkustundir að fullhlaða úr 0% upp í 100%.

Eftirtaldar akstursleiðir eru alfarið á hreinorku í dag:

Leið 51: Selfoss – Reykjavík

Leið 71: Þorlákshöfn – Hveragerði

Leið 52: Reykjavík – Vík – Reykjavík

Leið 72: Selfoss – Borg í Grímsnesi

Leið 73: Selfoss – Flúðir

Leið 53: Selfoss – Hvolsvöllur – Landeyjahöfn

Almenningssamgöngur milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur eru einnig alfarið í hreinorku: tvinn-ferjan Herjólfur IV og rafmagnsvagnar á leiðum 51 og 53.