17. febrúar 2026
Upplýs­ingar á kort­inu á umfer­din.is uppfær­ast ekki

Upplýsingar á kortinu á umferdin.is uppfærast ekki

Kortið á upplýsingavefnum umferdin.is uppfærist ekki. Nauðsynleg öryggisuppfærsla á færðarkortinu á umferdin.is tekur lengri tíma en áætlað var af óviðráðanlegum ástæðum.
Tilkynningar í textaformi um ástand og færð og mögulegar lokanir birtast hægra megin á síðunni og eru uppfærðar reglulega. Allar nauðsynlegar upplýsingar birtast þar.
Myndir í  vefmyndavélunum uppfærast líka og hægt að sjá ástand vegakerfisins áfram á þeim.
Þetta ástand gæti varað fram á kvöld.
Svo sem kunnugt er þá eru veðurviðvaranir á Suðausturlandi sem taka gildi í kvöld og nótt. Hringvegurinn frá Skógum og austur á Mýrdalssand (frá kl. 18:00) og í Öræfasveit frá Skaftafelli austur að Jökulsárlóni (frá kl. 22:00) eru á óvissustigi og líklegt að komi til lokana meðan versta veðrið gengur yfir.
Textinn hægra meginn á síðunni er með allar upplýsingar um ástandið eins og það er og eins upplýsingar um hugsanlegar lokanir. Upplýsingar um lokanir ef til þeirra kemur birtast þar einnig þótt þær sjáist ekki á kortinu sjálfu.
Skjáskot af umferðin.is

Skjáskot af umferðin.is