Framkvæmdafréttir 2. tbl 2025 komnar út
Framkvæmdafréttir, 2. tbl. nr. 735 eru komnar á vefinn. Í blaðinu er að finna fjölda áhugaverðra greina og frétta. Sem dæmi má nefna umfjöllun um stöðu framkvæmda í Hornafirði, á Hagabraut, Grafningsvegi og við Hvalllátra, grein um Herjólf og ástæður þess að hann siglir ekki alltaf til Landeyjahafnar og viðtal við Hauk Jónsson sem starfaði í hátt í fimmtíu ár hjá Vegagerðinni.
Þetta og margt fleira er að finna Framkvæmdafréttum sem má lesa á vefnum:
Bæði er hægt að gerast áskrifandi að vefútgáfu eða prentaðri útgáfu.
Áskrift er endurgjaldslaus. Ósk um áskrift sendist á askrift@vegagerdin.is.