26. október 2026
2.000 tonna brúargólf brátt dreg­ið yfir Ölfusá

Undirbúningur fyrir einn stærsta áfanga við byggingu nýrrar Ölfusárbrúar stendur nú yfir. Á næstu dögum verður 330 metra langt og um 2.000 tonna þungt brúargólf dregið frá austurbakka Ölfusár yfir á vestari bakkann. Verkið er vandasamt og gert er ráð fyrir að það taki um tíu daga.

Brúargólfið hefur verið sett saman á landi og er nú undirbúið fyrir flutning yfir Ölfusá. Í bakgrunni sést mastur nýju brúarinnar.

Brúargólfið hefur verið sett saman á landi og er nú undirbúið fyrir flutning yfir Ölfusá. Í bakgrunni sést mastur nýju brúarinnar.

Undanfarið hefur verið unnið að því að ljúka samsetningu stálgrindar brúarinnar og undirbúa flutning hennar yfir ána. Búið er að koma fyrir lögnum í brúargólfinu, meðal annars fyrir heitt og kalt vatn, háspennu og fjarskipti.

Brúargólfið færist áfram í litlum skrefum

Við færsluna verða notaðir öflugir vökvadrifnir tjakkar sem draga brúargólfið áfram eftir sérstökum dráttarlegum. Brúargólfið hvílir á púðum sem renna eftir sléttum stálplötum og koma í veg fyrir skemmdir á yfirborði stálbitanna.

Tjakkarnir draga brúargólfið áfram um hálfan metra í einu og er áætlað að hægt verði að færa það um tíu metra á klukkustund við bestu aðstæður.

Til að styðja við brúargólfið á meðan það er dregið yfir ána hefur verið komið fyrir stóru bráðabirgðamastri ofan á því. Frá mastrinu liggja stálkaplar sem halda uppi fremri enda brúargólfsins meðan á færslunni stendur.

Vandasamt verk sem krefst mikils undirbúnings

Færsla svo stórs og þungs mannvirkis er flókin framkvæmd sem krefst nákvæmrar skipulagningar og mikilla öryggisráðstafana. Verktakinn hefur undirbúið verkið í samráði við viðbragðsaðila og verður framkvæmdasvæðið lokað óviðkomandi á meðan brúargólfið er dregið yfir ána.

Gert er ráð fyrir að færslan taki átta til tólf daga, gangi allt samkvæmt áætlun.

Í meðfylgjandi myndbandi er farið yfir undirbúning framkvæmdarinnar og útskýrt hvernig staðið verður að því að draga þetta 2.000 tonna mannvirki yfir Ölfusá.

Sérhæfður búnaður undir stálvirki brúarinnar sem gegnir hlutverki við færslu brúargólfsins yfir Ölfusá.

Sérhæfður búnaður undir stálvirki brúarinnar sem gegnir hlutverki við færslu brúargólfsins yfir Ölfusá.

Sérhæfður stálbúnaður sem notaður er við að færa þunga brúarhluta til.

Sérhæfður stálbúnaður sem notaður er við að færa þunga brúarhluta til.

Höskuldur Tryggvason verkefnastjóri frá Vegagerðinni.

Höskuldur Tryggvason verkefnastjóri frá Vegagerðinni.

Skúli Sigvaldason staðarstjóri ÞG verktaka.

Skúli Sigvaldason staðarstjóri ÞG verktaka.

Horft yfir framkvæmdasvæðið við Ölfusá þar sem unnið er að smíði nýrrar brúar. Brúargólfið hefur verið sett saman á landi og undirbúningur stendur yfir fyrir drátt þess yfir ána.

Horft yfir framkvæmdasvæðið við Ölfusá þar sem unnið er að smíði nýrrar brúar. Brúargólfið hefur verið sett saman á landi og undirbúningur stendur yfir fyrir drátt þess yfir ána.

Sterkir stálstrengir halda uppi framenda brúargólfsins og veita honum stuðning þegar stálvirkið verður dregið yfir Ölfusá.

Sterkir stálstrengir halda uppi framenda brúargólfsins og veita honum stuðning þegar stálvirkið verður dregið yfir Ölfusá.