Vegagerðin auglýsir eftir öflugum einstaklingi til starfa á rannsóknarstofu Vegagerðarinnar.
Starfið felur í sér að sinna fjölbreyttum grunnrannsóknum á steinefnum sem notuð eru í vegagerð. Við leitum að manneskju sem er úrræðagóð, nákvæm og þrautseig. Vinnan getur verið líkamlega krefjandi við meðhöndlun á sýnum.
Rannsóknarstofan fellur undir stoðdeild sem er á viðhalds- og þjónustusviði Vegagerðarinnar og starfa þar um 17 manns.
Starfsstöðin er á höfuðborgarsvæðinu.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið