• Vegagerðin
  • Umferðin
  • Sjólag
  • Mínar síður
  • Þjónustukönnun
Bóka ferð í ferju
Dalvík Grímsey
Árskógssandur Hrísey
Upplýsingasími 1777
Íslenska
Íslenska
English
  • Samgöngukerfið
    • Vegakerfið
      • Vegir
      • Brýr
      • Jarðgöng
      • Þjónusta
      • Vaktstöð
      • Umferðartölur
      • Yfirlitssíða
    • Siglinga- og hafnamál
      • Hafnir
      • Öldur og sjávarhæðir
      • Siglingar
      • Sjóvarnir
      • Vaktstöð siglinga
      • Vitar og leið­saga siglinga
      • Yfirlitssíða
    • Almenningssamgöngur
      • Landsbyggðarstrætó
      • Flug
      • Loftbrú
      • Ferjur
      • Tölfræði almenningssamgangna
      • Kort yfir almenningssamgöngur
      • Yfirlitssíða
    • Yfirlitssíða
  • Ferðaupplýsingar
    • Umferðin
      Umferðin
      Allar upplýsingar um færð og ástand vega á Íslandi.
    • Sjólag
      Sjólag
      Sjólag er upplýsingavefur Vegagerðarinnar fyrir sjófarendur við Ísland.
    • Annað efni
      • Færð og veður
      • Fjallvegir
      • Umferðarþjónusta 1777
      • Varúðarráðstafanir vegna veðurs
      • Vegalengdir
      • Yfirlitssíða
    • Yfirlitssíða
  • Verkefnin
    • Framkvæmdir
      • Kortasjá framkvæmda
      • Þjónustu- og viðhaldskortasjá
      • Yfirlitssíða
    • Í undirbúningi
      • Í kynningu
      • Umhverfismat
      • Fyrirhugaðar framkvæmdir
      • Yfirlitssíða
    • Útboð
      • Auglýst útboð
      • Opnun tilboða
      • Samningum lokið
      • Fyrirhuguð útboð
      • Yfirlitssíða
    • Yfirlitssíða
  • Vegagerðin
    • Starfsemi
      • Markmið og stefnur
      • Viðburðir
      • Gjaldskrá
      • Ársskýrslur Vegagerðarinnar
      • Sagan
      • Skipulag
      • Fyrir fjölmiðla
      • Fréttir
      • Rannsóknir og nýsköpun
      • Umsóknir og styrkir
      • Yfirlitssíða
    • Lífið í Vegagerðinni
      • Starfsstöðvar
      • Vinnustaðurinn
      • Starfsfólk
      • Laus störf
      • Vegagerðin í nærmynd
      • Framkvæmdafréttir
      • Yfirlitssíða
    • Gagnasafn
      • Brýr
      • Fjallvegir
      • Framkvæmdir
      • Framkvæmdafréttir
      • Framkvæmdaleyfi
      • Leiðbeiningar og reglur
      • Yfirlitssíða
      Sjá alla flokka
    • Sjálfbærni
      • Sjálfbærnistefna og áherslur
      • Loftslag
      • Hagsæld og lífsgæði
      • Umhverfisvernd
      • Umbætur í átt að sjálfbærni
      • LOKI kolefnisreiknir
      • Mat á umhverfisáhrifum
      • Yfirlitssíða
    • Öryggismenning
      • Öryggi í samgöngum
      • Öryggi á vinnustað
      • Persónuvernd og öryggi gagna
      • Yfirlitssíða
    • Yfirlitssíða
    • Bóka ferð í ferju
    • Dalvík Grímsey
    • Árskógssandur Hrísey
    • Mínar síður
    • Upplýsingasími 1777
    • Þjónustukönnun
    • English
  • Vegagerðin.is
  • Vegagerðin
  • Gagnasafn

Vetrar­þjón­usta

Gæðastaðall

Gæðastaðall í vetrarþjónustu lýsir þeim gæðakröfum sem eru gerðar og varða eftirfarandi þætti:

  • Þjónustumarkmið
  • Þjónustustig
  1. Tímasetningar og framkvæmd aðgerða
  2. Mesta snjódýpt og sléttleiki vegyfirborðs
  3. Hálkuástand
  4. Vegsýn á vegamótum og útmokstur

Þjónustuflokkar eru fjórir og eru gæðakröfur mismunandi eftir flokkum. Með fjarlægð frá þéttbýli er átt við helming af vegalengd milli þéttbýlisstaða. Dæmi: Milli Akureyrar og Varmahlíðar eru 94 km. Mesta fjarlægð frá þéttbýli er þá 47 km, vegur er í þjónustuflokki 2 og línuritið sýnir að öll leiðin skuli vera opin milli kl. 8:00 – 22:00

Heimilt er að færa til þjónustutíma um allt að eina klst., þannig að ef opnun vegar er flýtt að morgni, er þjónustu lokið að sama skapi fyrr að kvöldi, eða öfugt.

Í þjónustuflokki 1 á tímabilinu 0:00-06:00 skal miða við að gera hlé á þjónustu frá þeim tíma þegar umferðarmagn er komið undir 40 bíla á klst. og fram að þeim tíma sem er 1 klst. áður en morgunumferð nær sömu viðmiðunarmörkum. Miða skal við sama upphafs- og lokatíma alla daga vikunnar.

Reglurnar gilda fyrir festingar og tengingar á öllum gerðum af framtönnum, plógum, undirtönnum, dreifurum og skynjunarbúnaði sem ætlaðir eru fyrir vörubifreiðar og er í eigu Vegagerðarinnar, ásamt leiðbeiningum um frágang, tengingar og staðsetningu búnaðar. Reglurnar taka á engan hátt fram fyrir leiðbeiningar framleiðanda vörubifreiða eða búnaðar í eigu verktaka. Allar tengingar í vörubifreiðum eru á ábyrgð eigenda þeirra.

Reglur um festingar og tengingar á tækjabúnaði vörubifreiða í vetrarþjónustu
Skráreglur-um-festingar-og-tengingar-a-taekjabunadi-vorubifreida-i-vetrarthjonustu-2.-utgafa_juni_2020.pdf

Sækja skrá

Breytingar frá fyrri útgáfu

Þessar reglur koma í staðinn fyrir: Reglur um festingar og tengingar á tækjabúnaði vörubifreiða í vetrarþjónustu. 1. útgáfa, maí 2013

Leiðbeiningar og staðlar vegna vetrarþjónustuReglur um vetrarþjónustu

1. Skilgreining á vetrarþjónustu

Vetrarþjónusta er öll vinna við framkvæmd, eftirlit, aðstoð og beina verkstjórn á verkstað við snjómokstur og hálkuvarnir, hreinsun og flutningur á ís og krapa af vegi, úr vegrásum, ræsum og niðurföllum og frá umferðarmerkjum og öðrum mannvirkjum við veginn svo og hreinsun vegyfirborðs og rása eftir hrun í þeim tilfellum þar sem það er af völdum snjóskriða eða ísmyndunar ofan vegar, rekstur og minni viðgerðir á sandgeymslum, sandsílóum, viðgerðir á snjóflóðanetum, stofnkostnaður og viðgerðir á saltkistum, snjógrindum og öðrum minni háttar snjóvarnarvirkjum svo og viðhald snjóstika og snjóspíra sem lagfæra þarf á meðan snjómokstur stendur yfir.

Vetrarþjónusta er einnig endurnýjun á girðingum og öðrum minni háttar mannvirkjum utan vegar sem verða fyrir skemmdum í snjómokstri að því tilskildu að um leið séu gerðar ráðstafanir til að hliðstæðar skemmdir endurtaki sig ekki við sambærilegar aðstæður.

2. Reglur um vetrarþjónustu
Vegagerðin sér um allan snjómokstur á þjóðvegum og greiðir allan kostnað við mokstur þeirra leiða sem sýndar eru á vetrarþjónustukorti Vegagerðarinnar og í samræmi við þær reglur sem þar gilda. Vegagerðin greiðir ekki kostnað við snjómokstur sem til hefur verið stofnað án hennar samþykkis.

Þegar vegur er opnaður er stefnt að því að hann nái að þjóna venjulegri morgunumferð á hverju svæði. Lengd þjónustutíma er háð umferð á hverjum stað og er skilgreindur í vinnureglum í vetrarþjónustu.

Vegagerðin getur frestað mokstri ef veður er óhagstætt, eins og í snjókomu eða skafrenningi, eða þegar slíkt veður er fyrirsjáanlegt. Er þá mokað næsta dag sem veður leyfir.

Vegagerðin hefur skilgreint þá vegi þar sem heimilt er að beita helmingamokstursreglu.
Þessa vegi er heimilt að moka með kostnaðarþátttöku Vegagerðarinnar að hámarki þrisvar sinnum í viku, meðan fært þykir vegna veðráttu og snjóþyngsla. Vegagerðin greiðir þá helming kostnaðar þegar beðið hefur verið um moksturinn og greiðsla mótaðila hefur verið tryggð, enda komi moksturinn fleiri vegfarendum til góða en þeim, sem um hann biður. Óskir sveitarfélaga um slíkan mokstur skal að jafnaði ganga fyrir óskum einstaklinga.

Á vegum með tveggja daga mokstri er heimilt að bæta við einum degi í helmingamokstri.

Regla þessi gildir aðeins að býlum með vetursetu. Kostnaður við allan annan mokstur, umfram það sem ofangreindar reglur segja til um, skal greiddur af viðkomandi sveitarfélagi eða þeim sem óska eftir viðbótarmokstri.

Stjórnun vetrarþjónustu fer fram í viðkomandi sveitarfélagi að undangengnum samningum.
Verkefni sveitarfélagsins getur verið með tvennum hætti:

Vetrarþjónusta alfarið í umsjón sveitarfélaga:
Verkefni sveitarfélagsins er allur snjómokstur, þ.e. flutningur á snjó og hálkuvarnir, þ.m.t. kostnaður við innkaup hálkuvarnaefna.
Hálkuvörn er skv. skilgreindum vinnureglum og í samræmi við þjónustuflokk vegarins. Möguleg hálkuvarnarefni eru sandur, saltblandaður sandur, salt og/eða saltupplausn (pækill).

Einungis hreinsun vegamóta í umsjón sveitarfélaga:
Vegagerðin sér um snjómokstur en sveitarfélagið sér um hreinsun vegamóta og flutning á snjó.

G-regla: Heimilt er að moka tvo daga í viku haust og vor á meðan snjólétt er. Hausttímabil er skilgreint til 1. nóvember og vortímabil frá 20. mars. Ástandið er skilgreint “snjólétt” þegar um er að ræða lítið snjómagn og færðarástand telst hvergi ófært, þungfært eða þæfingur á viðkomandi leið og þegar þjónustuaðgerðin felst eingöngu í hreinsun akbrautar með snjómokstursbíl.

Heimilt er að moka vegi sem falla undir G-reglu einu sinni í viku fram til 5. janúar á kostnað Vegagerðarinnar og eftir það einu sinni í viku að beiðni og gegn helmingagreiðslu frá sveitarfélagi þannig að fært sé fyrir fjórhjóladrifin ökutæki og/eða þegar kostnaður við þann mokstur er að jafnaði ekki meiri en þrefaldur sá kostnaður sem til fellur þegar leiðin telst snjólétt. Vegagerðin metur hvort viðkomandi mokstur sé raunhæfur m.t.t. notagildis og kostnaðar.

3. Innanhússreglur Vegagerðarinnar í vetrarþjónustu

  1. Að öllu jöfnu er miðað við að á hausti, á meðan snjólétt er, og auðvelt er að halda flestum leiðum opnum með bíl með snjótönn, sé hefðbundnum snjómokstursleiðum haldið opnum eftir þörfum og þar með sé frestað gildistöku á þeim snjómokstursreglum sem um þær gilda og er ákvörðun um tímasetningu gildistöku þeirra metin hverju sinni.
  2. Gert er ráð fyrir þeim möguleika að hægt sé að flýta mokstri á einstaka leiðum þegar veðurspá er góð og útlit er fyrir að þjónustuleið haldist opin fram yfir næsta opnunardag.
  3. Ef ekki næst að opna hluta þjónustuleiðar á mokstursdegi (þ.e. fyrir 15:00) er miðað við að moka alla leiðina daginn eftir eða næsta dag þegar veður leyfir. Miðað er við að taka ákvörðun um frestun moksturs sem fyrst eftir hádegi og eigi síðar en kl. 15:00.
  4. Ef mokstur nýtist ekki, t.d. ef hluti lengri þjónustuleiðar lokast um miðjan dag (15:00-16:00), er gert ráð fyrir að moka alla leiðina daginn eftir eða næsta dag þegar veður leyfir.
  5. Ef veður versnar í lok vinnudags, þá er viðmiðunarreglan sú að halda mokstri áfram í allt að 2 klst. til að tryggja að þeir vegfarendur, sem þá eru á ferðinni á viðkomandi þjónustuleið, komist til byggða.
  6. Ef slys verður og líkur eru á að mannslíf séu í hættu, greiðir Vegagerðin allan kostnað við snjómokstur á þjóðvegum. Snjómokstur vegna björgunar verðmæta greiðist með sama hætti og í reglu um helmingamokstur.
  7. Ef ósk um það berst er heimild fyrir að moka láta snjó vegna sjúkraflutninga og greiðir Vegagerðin þá hluta þess kostnaðar með sama hætti og í reglu um helmingamokstur.
  8. Ef ósk um það berst er heimild fyrir að láta moka snjó innan sveitar vegna jarðarfara og Vegagerðin greiðir þá allan kostnað við snjómoksturinn.
  9. Vegagerðin greiðir allan kostnað við snjómokstur á þjóðvegum vegna slökkvistarfa eða þegar neyðarástand skapast, t.d. vegna víðtæks rafmagnsleysis.
  10. Óski lögregla sérstaklega eftir þjónustu Vegagerðar utan sem innan þjónustutíma er orðið við þeim óskum, enda hafa Vegagerðin og lögreglan farið yfir það sameiginlega að ekki sé eftir því kallað nema brýna nauðsyn beri til.
  11. Ákvarðanir, aðdraganda þeirra og samskipti eru færð í dagbók. Sérstakar aðgerðir eru ávallt rýndar að þeim loknum.

Hafa ber í huga að reglur þessar eru viðmiðunarreglur og ber að líta á þær sem slíkar. Vegagerðin ber enga ábyrgð á kostnaði eða tjóni sem upp kann að koma ef ekki tekst að framfylgja ofangreindum reglum.

Starfsmenn í umferðarþjónustu eða vetrarþjónustu skulu tafarlaust tilkynna vaktstöð um mannlausar bifreiðar á fáförnum leiðum ef ætla má, að bifreiðarnar hafi verið yfirgefnar vegna veðurs, ófærðar eða bilunar. Stjórnstöð skal koma boðum áfram til Neyðarlínu 112.

Starfsmaður í snjómokstri sem kemur að snjóflóði eða verður var við fallandi snjóflóð svo og vatnavexti eða skemmdir á vegmannvirkjum vegna vatnsflóða skal strax láta vaktstöð vita og hinkra við þangað til hann fær frekari fyrirmæli.

Vegagerðin
Suðurhraun 3
210 Garðabær

522 1000
kt. 6802692899
Sími umferðarþjónustu 1777

Laus störf
Persónuvernd og öryggi gagna
Hafa samband
Rafrænir reikningar

Facebook YouTube
Græn Skref