Stefnan byggir á hlutverki, gildum og meginmarkmiðum Vegagerðarinnar.
Gildi Vegagerðarinnar eru: Fagmennska – Öryggi – Framsýni – Þjónusta
Vegagerðin einsetur sér að vera framsýn í umhverfismálum og starfa af fagmennsku
Við stefnumótun, hönnun, byggingu og rekstur samgöngumannvirkja leitast Vegagerðin við að vernda ósnortið land, víðerni og verndarsvæði, vistkerfi, landslagsheildir, náttúru- og menningarminjar.
Vegagerðin stefnir að því að draga úr vistspori sinna framkvæmda með hringrásarhagkerfið að leiðarljósi og hagkvæmri nýtingu auðlinda.
Vegagerðin leggur áherslu á að takmarka röskun lands, frágangur falli vel að landslagi og umgengni sé til fyrirmyndar.
Vegagerðin vill stuðla að ánægjulegri upplifun veg- og sjófarenda með vandaðri hönnun og rekstri sem taki mið af byggingarlist, varðveislu menningarumhverfis og náttúru.
Vegagerðin vinnur að stöðugum umbótum í samræmi við kröfur umhverfisstjórnunarstaðla ISO-14001.
Vegagerðin hlítir öllum ákvæðum laga og reglugerða sem varða umhverfisþætti starfseminnar.
Vegagerðin stefnir á að vera til fyrirmyndar í loftslagsmálum með því að draga markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) frá starfseminni og þeim áhrifum sem losunin hefur í för með sér. Aðgerðaráætlun í loftslagsmálum er útfærð í sjálfbærnistefnu Vegagerðarinnar.
Vegagerðin tekur mið af skuldbindingum íslenskra stjórnvalda gagnvart Parísarsamningnum og yfirlýsingum stjórnvalda um samdrátt í losun GHL og kolefnishlutleysi.
Vegagerðin leggur áherslu á að auka seiglu samgöngukerfisins gagnvart loftslagsbreytingum.