Útgáfudagur: 14.10.2026
Mannauðs- og jafnréttisstefna Vegagerðarinnar byggir á heildarstefnu stofnunarinnar og gildum hennar: fagmennska, öryggi, framsýni og þjónusta. Mannauðsstjóri ber ábyrgð á framgangi mannauðs- og jafnréttismála. Framkvæmdastjórn ber ábyrgð á að stefnunni sé framfylgt innan sviða og svæða.
Mannauðs- og jafnréttisstefnan er útfærð með stefnumiðuðum verkefnum sem eru metin reglulega með gögnum og skilgreindum mælikvörðum.
Öflugt starfsfólk, góð stjórnun og inngildandi vinnustaðamenning eru lykilforsendur þess að Vegagerðin nái markmiðum sínum og geti sinnt hlutverki sínu. Við viljum efla starfsfólk til góðra verka, laða að og halda í hæft starfsfólk og skapa eftirsóttan vinnustað með áhugaverðum verkefnum um allt land, öflugri liðsheild, jákvæðri menningu og jöfnum tækifærum.