Markmið þessarar rannsóknar var að meta hvort breytingar hafi orðið á smádýralífi Skarðsfjarðar. Sýni voru tekin úr seti leiranna í Sílavík og Flóa í Skarðsfirði, hryggleysingjar úr þeim greindir og niðurstöðurnar bornar saman við rannsókn sem var gerð á sama svæði árið 1979. Selta var mæld á flóði og fjöru auk þess sem setsýni voru tekin til að greina innihald lífræns efnis. Niðurstöður þessarar rannsóknar eru kynntar í þessari skýrslu.

Hólmfríður Jakobsdóttir, María Rúnarsdóttir, Róbert Ívar Arnarsson, Snævarr Guðmundsson