PDF · Útgáfa NR-1800-1082 — febrúar 2026
Orku­skipti í þunga­flutn­ingum – hleðslu­innvið­ir við þjóð­vegi

Verkefnið fólst í greiningu á hleðsluinnviðum fyrir rafmagnstrukka við þjóðveg 1, með það að markmiði að skilja hvaða staðsetningar og lausnir henta best fyrir orkuskipti í þungaflutningum. Þó að vetnistrukkar séu teknir með í samanburði er megináherslan á rafmagnstrukka, enda er rafvæðing sú leið sem er líklegust til að þróast hraðast næstu ár. Verkefnið snerist því fyrst og fremst að því að greina hvaða aðstæður, orkuinnviðir og kostnaðarliðir þurfa að vera til staðar til að rafmagnstrukkar geti ekið milli landshluta með skilvirkum og öruggum hætti.

Skjámynd 2026-07-02 130609
Höfundur

Jón Björn Skúlason

Skrá

nr_1800_1082_orkuskipti-i-thungaflutningum-hledsluinnvidir-vid-thjodvegi.pdf

Sækja skrá