PDF · Útgáfa NR-1800-025 — mars 2026
Grím­svatna­hlaup, vatns­geym­is, upphaf og rennsli 2024

Hér er gerð grein fyrir verkum sem unnið var að með stuðningi Rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar í verkefninu: Grímsvatnahlaup: Vatnsgeymir, upphaf og rennsli á árinu 2024. Grímsvötn eru í lægð Grímsvatnaöskjunnar í miðjum Vatnajökli. Þar er stærsta jarðhitasvæði landsins og auk bræðsluvatns af jökulyfirborði safnast þar vatn sem bráðnar vegna jarðhita við jökulbotninn. Ofan á Grímsvötnum er íshella, um 300 m þykk að jafnaði, sem flýtur upp með aukinni vatnssöfnun. Öðru hvoru brestur ísstíflan sem heldur að vatninu til austurs, og vatn hleypur við jökulbotn frá Grímsvötnum til Skeiðarársands.

Helstu niðurstöður vinnu á árinu 2024 við könnun á aðstæðum í Grímsvötnum eru kynntar hér m.a. vatnshæð, flatarmál og rúmmál Grímsvatna, lega vatnsrása, mat á þykkt íshellu, vöktun ísstíflu, mat á líklegu hámarksrennsli í hlaupum, rennsli frá Grímsvötnum ásamt mati á núverandi stöðu í Grímsvötnum og líklegri þróun þar. Einnig afkomu ísasviðs Grímsvatna, lögun þess, ísskrið og afrennsli leysingavatns til þeirra.

Skjámynd 2026-07-02 101237
Höfundur

Finnur Pálsson, Eyjólfur Magnússon

Skrá

nr_1800_025_grimsvatnahlaup-vatnsgeymis-upphaf-og-rennsli-2024.pdf

Sækja skrá