PDF · Útgáfa NR-1800-1054 — mars 2026
Grein­ing jarð­skjálfta í Bárðar­bungu, kort­lagn­ing kviku­hólfs og nátt­úruvá

Þessi lokaskýrsla tekur saman þann verkhluta verkefnisins sem studdur var af Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar árið 2025. Styrkurinn var nýttur sem viðbótarframlag til vettvangsvinnu í stærra rannsóknasamstarfi um skjálftavirkni og kvikukerfi Bárðarbungu. Meginmarkmið styrkhlutans var að gera mögulega uppsetningu, rekstur og endurheimt tímabundins, þétts jarðskjálftanets á og við öskju Bárðarbungu undir Vatnajökli, og þar með afla hágæða gagna fyrir áframhaldandi greiningu á kvikukerfinu og náttúruvá á svæðinu.

Á tímabilinu 3.-4. apríl 2025 voru 12 hallanæmir þriggja þátta breiðbandsjarðskjálftamælar settir út á og við öskjuna. Mælarnir voru síðan sóttir 19.-20. september 2025, þannig að samfelld gagnasöfnun stóð yfir í um 5,5 mánuði. Vettvangsvinna tókst vel, gagnaheimt var nær samfelld og gæðaskoðun sýnir að gagnasafnið hentar vel fyrir fyrirhugaða jarðskjálftaskrá, endurstaðsetningar og tómógrafíuvinnslu.

Skjámynd 2026-07-02 111422
Höfundur

Elías Rafn Heimisson, Thomas Winder

Skrá

nr_1800_1054_greining-jardskjalfta-i-bardarbungu-kortlagning-kvikuholfs-og-natturuva.pdf

Sækja skrá