PDF · Útgáfa NR-1800-1046 — apríl 2026
Athug­un á fiska­lífi í vötn­um á Mýrum fyrir endur­heimtarað­gerð­ir

Fyrsti áfangi endurheimtaraðgerða hófst seint um haustið 2025 og fólst í endurheimt lækjafarvega sem falla úr þremur vötnum. Gönguhindranir fyrir fiska voru fjarlægðar og farvegur lækja sem áður runnu í skurðum endurmótaður. Markmið endurheimtarinnar er að bæta göngu- og hrygningarskilyrði fyrir fiska og auka stofnstærð þeirra í vötnunum. Því var nauðsynlegt að afla betri upplýsinga um stöðu fiskistofna í vötnunum þremur sumarið 2025 áður en aðgerðir hófust til að geta metið árangur þeirra. Í þessari skýrslu er farið yfir niðurstöður úr rannsóknarveiði úr þremur vötnum á Mýrum, Bretavatni, Álftatjörn og Bæjartjörn.

Skjámynd 2026-07-02 105105
Höfundur

Ragna Guðrún Snorradóttir, Jóhannes Guðbrandsson

Skrá

nr_1800_1046_athugun-a-fiskalifi-i-votnum-a-myrum-fyrir-endurheimtaradgerdir.pdf

Sækja skrá