Í þessu rannsóknarverkefni er greint frá samfélagslegum áhrifum rafhlaupahjóla á Íslandi með áherslu á öryggi, val á fararmáta, lýðheilsu og umhverfisáhrif. Niðurstöður benda til þess að samfélagsleg áhrif rafhlaupahjóla séu neikvæð við núverandi aðstæður, einkum vegna hárrar slysatíðni og þess að meirihluti ferða virðist koma í stað virkra ferðamáta fremur en bílaferða.
Slysakostnaður þeirra er töluverður og heilsufarsleg og umhverfisáhrif takmörkuð. Þörf er að endurskoða regluverkið, sérstaklega með tilliti til aðgengis að leiguhjólum á þeim tímum sem flest slys gerast.

Berglind Hallgrímsdóttir og Valur Elli Valsson