Verkefnið greinir tengsl veðurs og hjólreiða í Reykjavík fyrir árin 2018-2023. Klukkustundargögn úr hjólateljara í Nauthólsvík voru pöruð saman við veðurmælingar (hitastig, vindhraða, úrkomu, snjódýpt) frá Veðurstofu Íslands og grein með línulegu aðhvarfi. Hitastig hvetur mest til hjólreiða, en vindur, úrkoma og snjór draga úr ferðum, einkum á vetrum. Á háannatímum skýra veðurþættir um 30% breytileikans, en innan við 15% á vetrarhelgum.

Ásmundur Jóhannsson, Ragnar Gauti Hauksson
Katrín Halldórsdóttir, Ragnar Gauti Hauksson