PDF · Útgáfa NR-1800-1055 — mars 2026
Þjál­bik með auknu viðnámi gegn sumar­blæð­ingum

Í þessu verkefni er markmiðið að þróa þjálbik með hærra mýkingarmarki og leggja í kjölfarið út í tilraunaútlögn. Til þess að hægt sé að hækka mýkingarmarkið er nauðsynlegt að breyta verklagi við útsprautun og sprauta út við hærra hitastig. Hluta af verkefninu er að skoða samband mýkingarmarks, seigju og hitastigs og finna hinn gullna meðalveg þjálbiksblöndu með hærra mýkingarmark sem hægt er að sprauta út við hærra hitastig svo blandan uppfylli seigjukröfur sem gerðar eru til efnisins. Ekki eru til staðlaðar aðferðir til að meta hættu á blæðingum og því þarf að þróa blönduna á rannsóknarstofu og leggja síðan út í tilraunaskyni. Eftir útlögn þarf að taka kaflann út, fylgjast svo með framvindu hans eftir áraun vetrarþjónustu og fylgjast með hvort blæðingar myndist yfir sumartímann.

Skjámynd 2026-07-02 112215
Höfundur

Björk Úlfarsdóttir, Elma Katrín Örvarsdóttir, Sigurrós Arnardóttir

Skrá

nr_1800_1055_thjalbik-med-auknu-vidnami-gegn-sumarblaedingum.pdf

Sækja skrá