Birtar eru niðurstöður á tæringu á fimm tegundum af ryðfríu stáli eftir fjögurra ára veðrun á Kársnesi í Kópavogi og við Veðurstofu Íslands í Reykjavík. Þessi skýrsla er framhald af skýrslum síðustu þriggja ára þar sem birtar eru niðurstöður rannsóknarinnar eftir eitt, tvö og þrjú ár. Um framkvæmd rannsóknarinnar er vísað í fyrri skýrslur. Allnokkur pittamyndun og litabrigði komu fram á einni stáltegund, 1.4404 (AISI 316L). Sýni úr því stáli hafa fallið um einn flokk milli ára. Engin tæring hefur ennþá komið fram á öðrum sýnum úr ryðfríu stáli.

Baldvin Einarsson
Baldvin Einarsson, Ólafur Sveinn Haraldsson