Mikilvægt er að skrásetja þekkt ofanflóðasvæði þar sem snjóflóð hafa fallið á eða yfir vegi á Íslandi, til að unnt sé að meta þörf fyrir mótvægisaðgerðir. Jafnframt er nauðsynlegt að skrásetja virkni ofanflóðavarna sem þegar hafa verið reistar til að meta ávinning af vörnunum á umferðaröryggi og þjónustustigi vega. Jafnframt er mikilvægt að endurmeta hvort aðrar varnir henti jafnvel betur við slíkar aðstæður.

Kolbrún Lena Rafnsdóttir og Gísli S. Pétursson