Upplýsingaskilti

Leiðbeiningar um lestur nýrra upplýsingaskilta um veður

Á nýjum upplýsingaskiltum Vegagerðarinnar birtast rauntímaupplýsingar frá veðurstöðvum við vegi landsins. Hér að neðan eru leiðbeiningar um hvernig lesa á þær upplýsingar sem fram koma á skiltunum.

Lína 1:

  • Í gula kassanum er Vegnúmer þess vegar þar sem veðurstöðin er staðsett við.
  • Nafn þeirrar veðurstöðvar sem upplýsingarnar sem birtast á skiltinu koma.
  • Fjarlægðin frá upplýsingaskiltinu að veðurstöðinni.

 

Lína 2:

  • Vindáttin sem vindurinn kemur frá.
  • Vindhraðinn mældur í m/s – þetta er uppsafnaður meðaltals vindur síðustu 10 mín.
  • Upplýsingar um hitastigið.
  • Ef vindhviður fara yfir 15 m/s þá birtast upplýsingar um það eftir vindhraðann og koma fram innan í sviga og birtast í rauðum stöfum t.d. (16m/s)

 

Annað upplýsingaskilti
Fyrir neðan má sjá myndir af upplýsingaskiltum, annars vegar skilti sem sýnir upplýsingar frá tveimur veðurstöðvum og hins vegar minna skilti sem birtir upplýsingar frá einni veðurstöð.

Einnig eru til enn stærri skilti sem eru fyrir þrjár veðurstöðvar.

 

Upplýsingaskilti