Þjón­ustu­flokk­un í almennri þjón­ustu – Skil­grein­ing

Ábyrgðarmaður

Ásbjörn Ólafsson

Þjónustuflokkun í almennri þjónustu – Skilgreining

Stofn- og tengivegum er skipt í þjónustuflokka. Flokkunin byggist að mestu á svokallaðri sumardagsumferð SDU, þ.e. meðalfjölda bíla á dag á tímabilinu maí – ágúst, en einnig á öðrum þáttum svo sem vegflokki, vegtegund og nálægð við hringveginn og mikilvæga ferðamannastaði.

Tíðni ruslahreinsunar og kantslátturs er áætlun út frá þjónustuflokki.

Tíðni gæðaúttekta í almennri þjónustu og gæðaviðmið nota einnig þessa þjónustuflokkun.

Þjónustuflokkunin er eftirfarandi:

Þjónustuflokkur 1
Vegir sem liggja á milli landshluta og/eða á milli þéttbýlissvæði og/eða atvinnusvæða og/eða ferðamannasvæða.

Umferðarþungi með SDU yfir 800 bílar á dag

Þjónustuflokkur 2
Vegir sem liggja á milli landshluta og/eða á milli þéttbýlissvæði og/eða atvinnusvæða og/eða ferðamannasvæða.

Umferðarþungi með SDU á bilinu 500 – 800 bílar og dag

Þjónustuflokkur 3
Stofn- og tengivegir með umferðarþunga SDU á bilinu 200 – 500 bílar á dag.


Þjónustuflokkur 4

Aðrir stofn- og tengivegir

Þéttbýlisvegir
Þjóðvegir í þéttbýli