PDF
Leið­bein­ingar um afmörk­un hafna­svæða

Innviðaráðuneytið hefur birt leiðbeiningar um afmörkun hafnasvæða. Markmið þeirra er að tryggja samræmda afmörkun hafnarsvæða á Íslandi í samræmi við þá starfsemi sem þar fer fram.
Ákvæði um afmörkun hafnarsvæða voru endurskoðuð með lögum nr. 93/2024 um breytingu á hafnalögum (nr. 61/2003). Eigendur hafna skulu, með hliðsjón af nýjum viðmiðum, senda innviðaráðuneytinu endurskoðuð ákvæði í hafnarreglugerðum um stærð og mörk hafnarsvæðis á sjó fyrir 1. janúar 2027.
Hafnir eru beðnar um að senda einungis uppfærð ákvæði um afmörkun hafnarsvæðis, en ekki breytingar á öðrum ákvæðum reglugerða, og að skila þeim svo fljótt sem kostur er.

_DSF1023h_b
Skrá

irn_leidbeiningar_afmorkun-hafnarsvaeda_2026.pdf

Sækja skrá