Almyrkvi á sólu 2026

Almyrkvi á sólu er ein stórfenglegasta sýning náttúrunnar. Þann 12. ágúst 2026 gengur almyrkvi yfir Norðurskautið, Grænland, Ísland, Portúgal og Spán, en deildarmyrkvi sést víða í Norður-Ameríku, Skandinavíu, Evrópu og Vestur-Afríku.

Almyrkvi á sólu 2026

Á Íslandi fer mjó almyrkvaslóð yfir vestasta hluta landsins. Alskuggi tunglsins snertir fyrst land við Straumsnesvita á Hornströndum kl. 17:43:28 og stendur þar í 1 mínútu og 26 sekúndur. Lengst verður myrkvinn við Látrabjarg, um 2 mínútur og 13 sekúndur.

Skuggi tunglsins ferðast yfir jörðina á um 3400 km hraða á klukkustund og færist yfir Snæfellsnes, Reykjavík og Reykjanesskaga áður en hann yfirgefur landið við Reykjanestá kl. 17:50:07. Þar varir almyrkvinn í um 1 mínútu og 47 sekúndur.

Í heild stendur almyrkvinn yfir á Íslandi í um 6 mínútur og 48 sekúndur. Þaðan heldur skugginn áfram suður yfir Atlantshafið og nær til Spánar um 35 mínútum síðar, þar sem almyrkvi verður við sólsetur á Mallorca.

Almyrkvi á sólu 2026 – Kort og myndir (png) – Google Photos

Vegalokanir

Vegna almyrkvans sem verður sýnilegur á Íslandi 12. ágúst 2026 er búist við verulegri aukningu í umferð á ákveðnum svæðum landsins. Til að tryggja öryggi vegfarenda og greiða fyrir umferð verður gripið til tímabundinnar umferðarstýringar á nokkrum vegum Vegagerðarinnar.

Umferðarstýringin hefst klukkan 12:00 þann 12. ágúst 2026 og stendur fram yfir atburðinn, eftir því sem þörf krefur.

Reykjanes

Á Reykjanesi verður umferðarstýring á eftirfarandi vegum:

Garðskagavegur (45) frá Nesvegi að Sandgerði

Vatnsleysustrandarvegur (420) frá Vogum að Kúagerði

Þessar ráðstafanir eru gerðar til að stýra aukinni umferð á svæðinu þar sem búist er við miklum fjölda gesta sem vilja fylgjast með almyrkvanum.

Snæfellsnes

Á Snæfellsnesi verður umferðarstýring á:

Útnesvegi (574) frá Hellissandi að Búðum

Á þessu svæði er enn til skoðunar í hvora áttina umferð verður stýrt með einstefnu. Þó er mikilvægt að vegfarendur geri ráð fyrir umferðarstýringu á þessum kafla. Upplýsingar verða uppfærðar reglulega á þessari síðu þegar nánari útfærsla liggur fyrir.

Vestfirðir

Á Vestfjörðum verða eftirfarandi vegir með tímabundna einstefnu:

Örlygshafnarvegur (612)

Rauðasandsvegur (614)

Einstefna verður frá Barðastrandarvegi frá klukkan 12:00 þann 12. ágúst 2026. Eftir að atburðinum lýkur verður umferð stýrt til baka eftir sömu leið.

Markmið umferðarstýringar

Megintilgangur þessara ráðstafana er að tryggja greiða leið viðbragðsaðila ef neyðartilvik koma upp, þar sem búast má við mjög mikilli umferð á þessum vegum. Með skipulagðri umferðarstýringu er einnig leitast við að draga úr hættu á umferðarteppum og bæta öryggi allra vegfarenda.

Samstarf við viðbragðsaðila

Skipulagning og framkvæmd umferðarstýringarinnar er unnin í nánu samstarfi við lögreglu og aðra viðbragðsaðila á viðkomandi svæðum. Vegfarendur eru hvattir til að fylgja leiðbeiningum lögreglu og umferðarstjórnenda og sýna aðgát á svæðunum.

Umferðarstýring

Umferðarstýring vegna almyrkvans 12. ágúst 2026

Gildir frá kl. 12:00 og fram yfir atburð.

📍 Reykjanes

Garðskagavegur (45)
Nesvegur → Sandgerði

Vatnsleysustrandarvegur (420)
Vogar → Kúagerði

📍 Snæfellsnes

Útnesvegur (574)
Hellissandur ↔ Búðir

Akstursstefna ákveðin síðar.
Upplýsingar verða uppfærðar.

📍 Vestfirðir

Örlygshafnarvegur (612)
Einstefna frá Barðastrandarvegi

Rauðasandsvegur (614)
Einstefna frá Barðastrandarvegi

Markmið umferðarstýringar:
Að tryggja greiða leið viðbragðsaðila, draga úr umferðarteppum og auka öryggi vegfarenda þar sem búast má við mikilli umferð vegna almyrkvans.