Véla­maður á Hólma­vík

  • LocationVestfirðir
  • TypeIðnstörf
  • Employment100%
  • Application deadline18. ágúst 2025

Vegagerðin auglýsir laust starf vélamanns á þjónustustöðinni á Hólmavík.  

Vélamenn vinna á opnunartíma þjónustustöðvar en eru þar að auki á bakvöktum utan dagvinnutíma frá október-apríl alla daga vikunnar, til að sinna vetrarþjónustu.  

Helstu verkefni

Vélamenn sinna almennri daglegri þjónustu á vegakerfinu á starfssvæði þjónustustöðvarinnar á Hólmavík. Meðal verka er viðhald á vegstikum, umferðamerkjum og öðrum vegbúnaði ásamt annarri vinnu í starfsstöð.   


Hæfniskröfur

  • Almenn ökuréttindi skilyrði 
  • Vinnuvélaréttindi æskilegt  
  • Meirapróf æskilegt  
  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg  
  • Góð öryggisvitund  
  • Hæfni í mannlegum samskiptum  
  • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp  
  • Gott vald á íslensku  
  • Almenn tölvukunnátta  

Frekar upplýsingar um starfið

Wages according to the current collective agreement by the Minister of Finance and Economic Affairs and Verkalýðsfélag Vestfirðinga.

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru.  

Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir. Mynd af ökuskírteini/ vinnuvélaréttindum þarf að fylgja umsókn.

Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.  

Gunnar Númi Hjartarson
Gunnar Númi Hjartarson

gunnar.n.hjartarson
@vegagerdin.is