Laust er til umsóknar starf verkfræðings á sviði brúarhönnunar á hönnunardeild Vegagerðarinnar. Hönnunardeild tilheyrir Mannvirkjasviði og getur starfsstöð verið í Garðabæ eða á Akureyri. Vegagerðin gegnir lykilhlutverki í þróun, skipulagi, hönnun, framkvæmd og rekstri samgöngumannvirkja um land allt.
Á þjóðvegakerfinu eru tæplega 1200 brýr og framundan eru fjölbreytt og spennandi verkefni við nýbyggingu, breikkun og viðhald brúa víðs vegar um landið. Leitað er að lausnamiðuðum einstaklingi með menntun eða reynslu og brennandi áhuga á sviði burðarþolshönnunar.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið