Sumarstörf á Vestur­svæði: þjón­ustu­deild og tækni­deild

  • LocationVesturland
  • TypeSumarstörf
  • Employment100%
  • Application deadline3. mars 2026

Opið er fyrir umsóknir um sumarstörf á tæknideild og þjónustudeild Vestursvæðis.
Starfsstöð getur verið á Ísafirði eða í Borgarnesi.  

Helstu verkefni

Tæknideild:

  • Landmælingar, úrvinnsla gagna, minni hönnunarverkefni, ásamt ýmsum verkefnum á starfsstöðinni.

Þjónustudeild: 

  • Vinna við áætlanir og undirbúning þjónustuverkefna, eftirlit með þjónustuverkefnum, ásamt ýmsum tilfallandi verkefnum á starfsstöðinni. 
  • Eftirlit með viðhaldsverkefnum og önnur tilfallandi störf sem tilheyra viðhaldi.

Hæfniskröfur

  • Hafa lokið einu ári í háskóla í námi sem nýtist í starfi s.s. verkfræði, tæknifræði, landfræði, jarðfræði eða sambærilegu.
  • Almennt ökuskírteini.
  • Góð öryggisvitund.
  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og hæfni að vinna í hóp.
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku.

Frekar upplýsingar um starfið

Wages according to the current collective agreement by the Minister of Finance and Economic Affairs and the relevant trade union.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og þær hæfnikröfur sem óskað er eftir, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. 

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Nánari upplýsingar veitir

Kristinn Gunnar K. Lyngmo
deildarstjóri þjónustudeildar

kristinn.g.k.lyngmo
@vegagerdin.is
Birgitta Rán Ásgeirsdóttir
deildarstjóri tæknideildar

birgitta.r.asgeirsdottir
@vegagerdin.is