Hjá Vegagerðinni eru framundan spennandi tímar og okkur vantar öflugan kerfisstjóra í fjölbreytt og áhugavert starf á deild upplýsingatækni og gagnaþjónustu á starfstöð okkar í Garðabæ. Upplýsingatækni og gagnaþjónusta tilheyrir fjármálasviði og starfa 13 starfsmenn á deildinni.
Starfið felst í kerfisstýringu ásamt fjölbreyttum verkefnum til að tryggja öruggan rekstur upplýsingakerfa Vegagerðarinnar svo sem:
Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 350 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.