Sérfræð­ingur í umsjónar­deild á Suður­svæði

  • LocationSuðurland
  • TypeSérfræðistörf
  • Employment100%
  • Application deadline8. desember 2025

Vegagerðin auglýsir eftir öflugum einstaklingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum á umsjónardeild Suðursvæðis, kostur ef viðkomandi hefur þekkingu og áhuga á malbiki og klæðingum.  Suðursvæði Vegagerðarinnar nær frá Gígjukvísl á Skeiðarársandi að botni Hvalfjarðar og upp á miðhálendi. Svæðismiðstöð Suðursvæðis er á Selfossi en sérfræðingur getur einnig haft starfsstöð í Garðabæ. 

Umsjónardeild hefur umsjón og eftirlit með framkvæmdum á Suðursvæði. Í samráði við mannvirkjasvið sinnir umsjónardeild nýbyggingum og viðhaldi bundinna slitlaga, styrkingum og endurbótum vega, ásamt efnisvinnslu. 

Helstu verkefni

  • Vinna við áætlanir og undirbúning framkvæmda í malbiki og klæðingum
  • Hafa umsjón/eftirlit með framkvæmdum bæði tæknilega og fjárhagslegu uppgjöri
  • Vinna við undirbúning verka, halda utan um magnuppgjör, áætlanagerð, kostnaðareftirlit, gæðaeftirlit og útboðslýsingar
  • Sjá um verkfundi og skráningar í gagnabanka að loknum framkvæmdum 
  • Önnur verkefni, sem falla undir starfsvið umsjónardeildar

Hæfniskröfur

  • Verkfræðingur, tæknifræðingur eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi 
  • Þekking og reynsla af nýframkvæmdum og viðhaldi vegamannvirkja æskileg 
  • Þekking og áhugi á malbiki og klæðingum
  • Reynsla af verkefnastjórnun æskileg 
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður 
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu 
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum  
  • Góð íslensku- og enskukunnátta 
  • Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni. 
  • Góð öryggisvitund

Frekar upplýsingar um starfið

Wages according to the current collective agreement by the Minister of Finance and Economic Affairs and Verkfræðingafélag Íslands.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið

Nánari upplýsingar veitir

Aron Bjarnason
Aron Bjarnason

aron.bjarnason
@vegagerdin.is