Sérfræð­ingur í umhverf­is- og sjálf­bærni­málum

  • LocationHöfuðborgarsvæðið
  • TypeSérfræðistörf
  • Employment100%
  • Application deadline16. október 2025

Við leitum að áhugasömum sérfræðingi í teymi umhverfis og sjálfbærni á þróunarsviði Vegagerðarinnar. 

Starfið er fjölbreytt og felur í sér virka aðkomu að umhverfisstarfi stofnunarinnar í nánu samstarfi við starfsstöðvar um allt land. 

Helstu verkefni

  • Umsjón og eftirfylgni með umhverfisstjórnunarkerfi, loftslagsbókhaldi og grænum skrefum í ríkisrekstri.  
  • Gagnagreining og framsetning gagna í kortagrunn 
  • Rýni á gögnum og stuðningur við umsagnir, m.a. umhverfismatsskýrslur 
  • Samráð við sérfræðinga og starfsstöðvar Vegagerðarinnar 
  • Þátttaka í þróun verkefna og nýs verklags á sviði sjálfbærni innan Vegagerðarinnar.  

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á framhaldsstigi í umhverfisfræði, jarðfræði, landfræði, líffræði, skipulagsfræði eða skyldum greinum 
  • Þekking á ArcGIS eða sambærilegum forritum 
  • Reynsla af umhverfisstjórnun, gagnavinnslu og skýrslugerð 
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og lausnamiðuð nálgun 
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar og góð hæfni í teymisvinnu
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti 

Frekar upplýsingar um starfið

Wages according to the current collective agreement by the Minister of Finance and Economic Affairs and the relevant trade union.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. 

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið 

Nánari upplýsingar veitir

Hólmfríður Bjarnadóttir
Hólmfríður Bjarnadóttir

holmfridur.bjarnadottir
@vegagerdin.is