Útgefið gæðaskjal
Skjalnúmer:-385
Útgáfudagur:12/15/2010
Útgáfa:3.0
Ábyrgðarmaður:Ásbjörn Ólafsson
E E Þjónustumerki

Almennar reglur
Reglugerð um umferðarmerki:
Þjónustumerkjum er ætlað að gefa vegfarendum upplýsingar um þjónustu sem í boði er á leið þeirra.
Þjónustumerki skal vera rétthyrndur ferhyrningur 500 mm á breidd og 600 mm á hæð. Tákn er að jafnaði svart á hvítum grunni með bláum ramma.
Vegamálastjóri setur reglur um uppsetningu þjónustumerkja við þjóðvegi utan kaupstaða og kauptúna en lögreglustjórar í þéttbýli.

Vinnureglur um notkun utan þéttbýlis:
Rekstrarstjórar Vegagerðarinnar bera ábyrgð á uppsetningu þjónustumerkja við þjóðvegi.
Hide details for Reglur Vegagerðarinnar um uppsetningu þjónustumerkjaReglur Vegagerðarinnar um uppsetningu þjónustumerkja
Óski þjónustuaðili eftir setja upp þjónustumerki við þjóðveg skal hann sækja um það skriflega eða í tölvupósti, til umdæmisstjóra eða rekstrarstjóra viðkomandi umdæmis.
Ef umsóknin er samþykkt setja starfsmenn Vegagerðarinnar merkið upp þegar áætlaður kostnaður hefur verið greiddur. Vegagerðin getur afturkallað leyfi fyrir þjónustumerkjum ef forsendur breytast.
Þjónustumerki er sett upp þar sem þjónusta er að jafnaði fyrir hendi. Gert er ráð fyrir að viðkomandi þjónustuaðili uppfylli leyfisskyld ákvæði laga og reglugerða.

Almennar reglur um starfsleyfisskylda starfssemi.
Í reglugerð um hollustuhætti nr. 941/2002 (sjá breytingar neðst) fylgiskjali nr. 1 er listi yfir starfsleyfisskylda starfsemi.
E07 merki eru ekki starfsleyfisskyld ef ekki er um að ræða aðra starfssemi samhliða s.s leiga á fatnaði eða veitingar o.þ.u.l.

Við vegamót þjóðvega er heimilt að setja upp leiðbeiningar fyrir þjónustu sem boðið er upp á við hliðarveg.

Á 1-2 stafa vegnúmerum skulu þjónustumerki vera minnst 250 m frá öðrum merkjum en á öðrum vegum minnst 100 m.

20-50 m frá vegamótum, inn á hliðarvegi þar, sem vísað er á þjónustu má setja upp upplýsingatöflu (F21.11) þar sem sýnd er táknræn mynd af byggð og þjónustu við hliðarveginn.

Þjónustumerki sem benda á þjónustu við hliðarveg má ekki setja upp við vegamót nema að vísað sé á sambærilega þjónustu framundan innan tvöfaldrar þeirrar fjarlægðar, sem er frá vegamótunum að þjónustu við hliðarveginn sé hún fyrir hendi.

Þar sem nauðsyn er á frekari leiðbeiningunum en fram koma á þjónustutáknum s.s. opnunartíma sundstaða, og brottfarartíma bílferja má gefa þær á upplýsingatöflu áður en komið að hliðarvegi. Sú upplýsingatafla verði ekki nær leiðamerkjum fyrir viðkomandi hliðarveg en 250 m.

Ef um 1-2 tegundir þjónustu er að ræða er heimilt að setja viðkomandi tákn inn á staðarvísi, F12.11og F12.21. Ef geta þarf um fleiri en 2 tegundir þjónustu er þjónustumerkjum raðað neðan við staðarvísinn og má velja á milli mismunandi útfærslna eftir mikilvægi, umferð og umferðarhraða á hverjum stað. Þjónustuaðilum er einnig heimilt að hafa merki eða tákn samtaka sinna eða fyrirtækis á staðarvísi svo á upplýsingatöflum við heimreiðar að viðkomandi þjónustustað.

Dæmi um notkun þjónustumerkja (og fyrirtækjamerkis) undir staðarvísi.


File Attachment Icon
Handbók E Þjónustumerki.doc
File Attachment Icon
E.FH10