24. júní 2025
Fram­kvæmd­ir við Arnar­nesveg á áætl­un

Framkvæmdir við Arnarnesveg á áætlun

Framkvæmdir við 3. áfanga Arnarnesvegar, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, hafa gengið vel í vor. Verkið hófst í september 2023 og er framkvæmdatími nú rúmlega hálfnaður. Stefnt er að verklokum í nóvember 2026.  

Brúin yfir Dimmu.

Brúin yfir Dimmu.

Brú yfir Dimmu senn tilbúin 

Hluti framkvæmdanna felst í nýrri göngu- og hjólabrú yfir Dimmu í Elliðaárdal. Uppsetningu brúarinnar er lokið en eftir er frágangur á vatnsþéttilagi, malbiki og handriði. Einnig er unnið að stígatengingum hvoru megin við brúna. Vonir standa til þess að hægt verði að taka brúna í notkun síðar í sumar.  

Steypuvinna hafin við stöpla og brúardekk 

Malbikun nýrrar akbrautar meðfram Breiðholtsbraut, austan Jaðarsels að Vatnsendahvarfi, er lokið og stendur frágangur nú yfir. Á sama svæði er unnið að undirslætti brúardekks fyrir akstursbrú yfir Breiðholtsbraut. Steypuvinna við endastöpla nýrrar göngubrúar yfir Arnarnesveg, til móts við Turnahvarf, er langt komin og nálgast verklok.  

Fyllingar og hljóðmanir í vinnslu 

Framkvæmdir við fyllingar undir Arnarnesveg og göngu- og hjólastíga, bæði við veginn sjálfan og í Elliðaárdal, eru einnig í gangi. Klappskeringar í vegstæðinu sunnan Breiðholtsbrautar standa yfir en þær eru hluti af undirbúningi fyrir nýtt vegstæði. Á sama tíma er unnið við frágang hljóðmana meðfram nýjum Arnarnesvegi og Breiðholtsbraut, sem munu draga verulega úr umferðarhávaða í  nærliggjandi íbúðahverfum. 

Breytingar á stofnlögnum 

Að auki er unnið að breytingum á stofnlögnum fyrir heitt og kalt vatn þar sem ný undirgöng verða undir Arnarnesvegi við Rjúpnaveg. Tengingar frárennslislagna eru einnig í vinnslu. Þá er hafin framleiðsla á forsteyptum einingum sem notaðar verða við byggingu undirganganna.  

Unnið er að frágangi á dælubrunni og stígatengingum við nýju undirgöngin undir Breiðholtsbraut á móts við Völvufell. 

Jarðefni nýtast í Vetrargarðinn 

Við framkvæmdirnar hefur fallið til talsvert magn jarðefna sem nýtist ekki á verkstað. Þessi jarðefni hafa verið flutt í Vetrargarð Reykjavíkurborgar við Jafnaðarsel, þar sem unnið er að uppbyggingu útivistarsvæðis í brekkunni þar sem áður var skíðasvæði. Sáningu er að ljúka á meginhluta svæðisins og það tekið að grænka að nýju.  

Um framkvæmdina:  

Markmið framkvæmdanna er að bæta tengingar við efri byggðir Kópavogs og létta á umferð um aðliggjandi hverfi og stofnvegi og skapa betri skilyrði fyrir fjölbreyttari ferðamáta, þar með talið gangandi og hjólandi vegfarendur.   

Verkið er hluti af Samgöngusáttmálanum og er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkur, Kópavogs, Betri samgangna, Veitna og Mílu. Verktakar eru Suðurverk hf. og Loftorka Reykjavík ehf. 

Allar helstu upplýsingar um stöðu framkvæmda Samgöngusáttmálans má finna í upplýsingagáttinni Verksja.is 

  

Malbikun nýrrar akbrautar meðfram Beiðholtsbraut er lokið.

Malbikun nýrrar akbrautar meðfram Beiðholtsbraut er lokið.

Unnið að undirslætti brúardekks fyrir akstursbrú yfir Breiðholtsbraut.

Unnið að undirslætti brúardekks fyrir akstursbrú yfir Breiðholtsbraut.

Unnið að undirslætti brúardekks fyrir akstursbrú.

Unnið að undirslætti brúardekks fyrir akstursbrú.

Jarðefni sem nýtast ekki á framkvæmdastað eru notuð í Vetrargarð Reykjavíkurborgar sem verið er að byggja upp.

Jarðefni sem nýtast ekki á framkvæmdastað eru notuð í Vetrargarð Reykjavíkurborgar sem verið er að byggja upp.

Vegstæðið séð frá Breiðholtsbraut í áttina að Rjúpnavegi.

Vegstæðið séð frá Breiðholtsbraut í áttina að Rjúpnavegi.

Unnið er að smíði göngubrúar.

Unnið er að smíði göngubrúar.

Framkvæmdir hafa gengið vel í vor.

Framkvæmdir hafa gengið vel í vor.

Framkvæmdum á að ljúka síðla árs 2026.

Framkvæmdum á að ljúka síðla árs 2026.